Ég undirritaður vill endilega vera fyrstur til þess að óska háæruverðugum matreiðslumeistari baggalútíska heimsveldisins, hvæsa, til hamingju með innlegg nr. 1000 og þar af leiðandi vera kominn í hóp heiðursgesta.
Stendur á fætur og klappar
Skál. xT
Já, til hamingju með það. Veltir því fyrir sér af hverju Wiglihi gerði þetta en ekki hvæsi
Ha ? Gáir Nei sko, en gaman. Fær ryk í augað.
Þakka þér Wigl.. eitthvað Minnir sig á að læra nafnið
Þú ert greinilega fínn maður.
Býður öllum á fyllerí af þessu tilefni.
Líst vel á það.
Byrjar á lítersflösku af Highland Park 12 ára til ða hita upp
Skál xT
mígur í jameson flösku og skilur eftir á borðinu
Sér jameson flösku á borðinu.
Nei vááá, full flaska munaðarlaus.
Þambar alla flöskuna
Ekki slæmt, soldið salt, greinilega búið að standa lengi.
xT
horfir tómum augum á hvæsa
Er orðinn drukkinn, horfir á blóðugt, þurrkar jameson af vörunum og labbar nær blóðugt
Þú errrrt svvo sæhæt blóþuk. kyssstu mig.t
hleypur í burtu
Altaf fullur, sífelt prumpandi. það er ekki furðulegt að fólk horist hér á lútnum með þvílíkan yfirmatreiðslumeistara. Klæminn er han líka, og sjálfsagt er hann berrassaður þegar hann hrærir saman pizzurnar sínar. væri gaman að vita hvað hann notar til að hræra með? en víst til hamingju með þúsundasta gjammið.
Ég alltaf fullur og sífellt prumpandi?
Þú þekkir greinilega ekki kokkabransann á fínustu stöðum bæjarins.Glottir eins og fífl
Ég fór nú á veitingastað í verslunarmiðstöðinni þríhyrningnum (minnir að hún hafi heitið það) í Svíþjóð þar sem pizzugerðarmaðurinn var indverskur, smámæltur og alveg herfilega loðinn á höndunum. Hann var byrjaður að hnoða deigið á borðinu á meðan hann spurði okkur hvað við vildum á pizzuna. Hann nuddaði hveitinu sífellt upp um loðna framhandleggina og reyndi að gera sig skiljanlegan "þalami on piþþa? yeþ you can pay daniþh money".
Þessari minningu skaut upp í kollinn af einhverjum orsökum.
Þetta var skemmtileg verslunarmiðstöð. Þarna vann hommi í nærfatadeildinni og hann vandaði sig rosalega við að pakka niður í poka öllum nærfötunum sem ég var að kaupa.
Vinkona mín gekk svo á konu í hjólastól sem hún sá ekki bak við fatarekkana, og datt í gólfið. Konan tók þessu með ró!
Af hverju eru allir að tala um pizzur í kringum mig?Blótar herfilega og rífur hár sitt
Ég kem ekki nálægt svoleiðis matreiðslu.
Þessir svíar eru klikk. Snýr vísifingri hægrihandar við höfuðið til þess að skýra mál sitt
Þessir svíar eru klikk. Snýr vísifingri hægrihandar við höfuðið til þess að skýra mál sitt
Skál fyrir því.xT
Til hamingju Hvæsi minn. Taka þessu svo rólega, svo að þú klárir ekki innleggjaskamtinn þinn fyrir jól..!..
Vjer óskum yfirmatreiðslumeistara forsetaembættisins til hamingju en förum jafnframt fram á að hann stundi eigi efnavopnaframleiðslu er hann sinnir því starfi heldur einungis er hann vinnur að verkefnum hernaðarlegs eðlis.