Afar áhugavert að sjá hvernig þetta er að þróast,,, og ekki má gleyma komandi sveitastjórnarkostningum. Þessu upptöldu kostningar eru í raun bara fylgi fiskur þeirra og geta þar af leiðandi ekki verið toppurinn á neinu !
Efst á baugi er vitanlega prófkjör sjálfstæðismanna, en þangað mæta allir réttsýnir og góðir drengir, reykvískir, og kjósa sinn framtíðarleiðtoga.
Hefði ekki getað orðað það betur, enda Enter úrvals penni.
Ég týndi konunginum. Vitið þið hvar ég finn hann?
Hvern fjandann varstu að gera með kónginn og hvernig trókst þér að tína honum??
Öðru eins hefur maður nú týnt og kannski er þetta einsog með gleraugun,,, þau sitja á nefinu. Hvað lærdóm getur maður svo dregið afþví ?
Íslenska 101
Að týna með y = að glata e-h fyrir slysni
Að tína með i = að taka upp af jörðinni eða af trjám e-h, s.s. krækiber eða taðköggla.
Hélt kannski að það væri etv. að engin er öruggur með nef sitt því ef gleraugun geta týnst á nefinu, gæti þá ekki nefið týnst á gleraugunum ?