Sæll Runólfur. Ég er líka svolítið nýr.
Sæll vertu Runólfur og velkominn.
Býður upp á eplasnafs og harðfisk
-
Nýr?
Gott. Þá getur þú byrjað á að hreinsa klósettið og moppa stofugólfið.
Treður hreinsunardrasli upp í fang Runólfs
Vertu velkominn og komdu þér að verki lagsmaður.
Fer á háhest á Runólfi
Hott hott!
Klípur í eyrun á Runólfi og stýrir honum í hringi
Stekkur af baki og hendir rjómatertu framan í Runólf
Jæja kallinn, vertu velkominn.
Sleikir rjóma af nefi Runólfs og röltir í burtu
Jú jú, það er víst til siðs að kynna sig hér, vertu hjartanlega velkominn Runólfur og mundu að hegða þér vel hérna, annars býður Furðuvera aftur í nýliðakássu á næstunni Styður báðum höndum á mjaðmir, hallar sér aftur og hlær eins djúpum hlátri og unnt er
Já, er það svona sem maður byrjar hér. Allt í besta, ég fer að skrúbba.
Það er reyndar erfitt að skrúbba postulínið á meðan kattarskömmin spólar á bakinu á mér.
Vertu nú duglegur runi minn. brosir
Stingur höfðinu inn um hurðargáttina
Ó, og ekki sleppa að moppa undir eikarbókaskápinn. Ég mun athuga sérstaklega undir hann.
Ég sé að Hakuchi er kominn með nýjan einkaþjón.
Segi það svosum ekki. Um að gera að nota nýja innflytjendur á Gestapó til góðra verka svona til að byrja með, enda nóg að borga þeim skít og kanil.
Virðir fyrir sér Sindra
Hmmm...þú ert nú líka nýr.
Skellir snjóskóflu í hönd Sindra
Út að moka gangstéttina væni.
Ég get svo sem tekið það hlutverk að mér svona til að byrja með alla vega. Komdu með snjóskófluna Sindri, ég er einkaþjónninn.
Verður feginn að sleppa við moksturinn
Takk fyrir það Runi, ætli ég forði mér ekki áður en kóngsi hendir einhverju öðru í mig
Strunsar út af sviðinu og skellir á eftir sér
Það er gott að sjá að Runólfur er viljugur til verka. Kannski ég geri hann að einkaþjóni mínum. Þessir blessuðu leðurdvergar mínir eru ekki nógu áreiðanlegir í flóknari þjónustuhlutverkum.
Mér líst þó ekkert á vinnufælnina í Sindra. Svoleiðis löðurmennska gengur ekki til lengdar.