Úrval góðra ljóða á Gestapó, fyrir þá sem ekki nenna að lesa allt hér. Hendið fram eins og einni vísu sem er ykkur að skapi.
Ég byrja hugsar sig um til dæmis á honum Bölla:
Sjáist undir kvenna kjólum kuntur loðnar,
bóndinn hlær en rakkinn roðnar.
fírfoxið bara er bóla
betrer á neti að dóla
með vafra frá Villa
vaka og tsjilla
við pornskoðun púandi njóla
Af langlínuþræðinum.
það ætti að banna svo déskoti margorðar vísur - og vers
sem vella hér þrútin og fánýtum tilgangi þjóna
ég hlýt því að spyrjykkur heiðruðu hagmæltu kappar - til hvers?
æ hættið að teygjennan lopa - og farið að prjóna!
Prjónaskap eftirlæt þeim sem það hentar að hekla & sauma.
Hendell & Jóhannes, rituðu þeir kannski of marga tóna?
Í Sixtínsku krotaði Mikaelandséló mynd, ekki nauma.
Máske þeir félagar hefð´ átt að láta sér nægja - að prjóna...