Eftir áralanga fjarveru undir rótum Úralfjalla þá er ég kominn hér aftur mínir kæru vinir og heilsa ykkur öllum hér með heilum hug og hlýnar öllum um hjartarætur við að sjá ykkur hér aftur. Jafnframt vil ég heilsa hér öllum nýjum einstaklingum sem ég hefi ekki hitt áður og kynna mig:
Gaman að sjá þig á ný eftir nær tvö ár.
Það var orðið hálf leiðigjarnt að éta bara nýliða.
Sæll og blessaður. Tekur í hendina á Narfa
Gleður vjer að kynnast yður
Býður upp á bjór og skot
Viltu þá kannski leggja klið við leitina að Skabba? Hann virðist hafa horfið af yfirborði Baggalúts og hver veit hvar hann er niðurkominn. Svona víðförull maður eins og þú ættir að þekkja einhver af skúmaskotum alheimsins og geta gáð eftir kappanum. Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann. Sér engan Skabba þar og hættir að horfa
Kanski er Skabbi læstur inni á Næturgeltinum?
Klórar sér í höfðinu
Vertu óvelkominn aftur, mér líst ekkert á þig.
Sama er mér Donni litli, farðu nú út og hengdu þig!
Hvað ykkur áhrærir vinir mínir og velunnarar þá mun ég ekki unna mér hvíldar fyrr en Skabbi hefur fundist, lífs eða liðinn. Mun ég hefja leitina ekki síðar en nú.
Daginn...
Hæ!
Velkominn til baka og skál ! Sýpur á fagurbláum drykk og kemur til öryggis fyrir njósnamyndavjelum og hlerunartækjum