Já sei sei. Ég er fyrst núna að fatta að hann hefur tekið út myndina af sér.
Það er alvarlegt mál. Ég vona að elsku besti Skabbinn minn sé ekki horfinn endanlega.
Horfir saknaðaraugum út í buskann. Tár hrannast upp
Ach, óttalegt ryk er hérna. Maður fær bara tár
Snýr sér við og þurrkar úr augnum
Sniff sniff
Eigi líst oss heldur á blikuna, sjer í lagi sbr. ábendingu Texa framar í þræðinum.
Jafnframt krefjumst vjer þess hjer með að loftið hjer verði þegar í stað ryk- og reykhreinsað Setur upp dökk sólgleraugu.
Í versta falli bætist fljótlega við hagmæltur nýliði sem ber af sér mikinn þokka.
Kímir
-
Það gengur samt ekki. Skabbi er sál Baggalúts.
Rétt rétt. Merkilegri mann er erfitt að finna.
Ég vona eins og aðrir hér að hann snúi aftur endurnærður sem fyrst. En verði ekki af því þá vona ég að hann hafi það sem allra best.
-
Það gengur samt ekki. Skabbi er sál Baggalúts.
Rétt rétt. Merkilegri mann er erfitt að finna.
Ég vona eins og aðrir hér að hann snúi aftur endurnærður sem fyrst. En verði ekki af því þá vona ég að hann hafi það sem allra best.
-
Hakuchi: Þarna erum við þó sammála! Ég hef alltaf haldið þessu fram og falli Skabbinn fellur sálin.
Limbri: Ég trúi ekki öðru en að Skabbi rísi aftur. Hann hefur bara týnt myndinni úr veskinu og er að leita að henni.
Kíkir undir rós
NNNEEEEEEEEEEEEEEIIIIIIII!
Ófyrirgefanlegt! Gersamlega ófyrirgefanlegt!
Veltir fyrir sér hvaða rós þetta er
-
Hlammar sér máttvana á gangstéttina með vonleysissvip
Þetta er búið. Illur andi hefur kæft fegurstu sál Baggalúts. Þvílíkar hörmungar hafa ekki gengið yfir mannheima síðan Kain drap Abel.
Já, sumir taka í nefið í laumi, aðrir taka í nefið í allra augsýn. Það skal hver gera svo sem hann vill og hef ég sjálfur aldrei haft neitt að athuga við það ef einhver þekkir mig. En eftir ákveðið glæfralegt og ófyrirgefanlegt glappaskot mitt gerði ég mér það endanlega ljóst að menn eiga að opinbera sig sjálfir en ekki þiggja hjálp annarra til þess. Það virðist vera sem þessi neftóbaksfíkill sem Ira nefnir í félagsritinu sem Texi vísar á hafi notið lífsins sem óþekktur neftóbaksfíkill sem hvorki var hægt að rekja gjörðir né orð til einhvers aðila sem ekki er Glúmur.
En hvað Skabba varðar þá held ég að nærvera hans hafi skapað Gestapó og það verður aldrei sagt SKÁL af sömu innlifun hér verði þetta raunin. Ég legg til að við lyftum glasi til heiðurs Skabba. Megi hann birtast sem fyrst!
Skál fyrir Skabba xT.
Ekki vera svartsýnir, hann kemur aftur og ekki orð um það meir!
Góð hugmynd. Þar sem skálað er þar er Skabbi aldrei langt undan. Hver veit nema að hann renni á hljóðið xT Lætur hljóma vel og lengi í glasinu á eftir
ÁáÁáÁáÁáÁá!!!
Bara að athuga hvort Skabbi renni ekki á ljóðið.
Kála rímar vel við skála. Blótar herfilega og rífur hár sitt