Ætli lausnin sé hér? Hann kemur ekki aftur.
Fæðing hér: 11/08/03 - 13:32
Síðast á ferli: 24/10/05 - 9:59
Innlegg: 11472
Hann hefur þó litið nn. Vonandi snýr Skabbi aftur, yrði stórt skarð fyrir skildi láti hann sig alveg hverfa. Veltir fyrir sér uppkomnum vísbendingum
Eina líklega lausnin sem þó er allsvakalega hræðileg er að raðmorðingi sé hér á ferð. Raðmorðingi þessi lætur svo til skarar skríða á nokkurra mánaða fresti. Lýtur flóttalega í kring um sig og ræður lífvörð
Bara allir sem stigið hafa fæti inná Gestapó Ræður fleiri lífverði
Ég legg til að Sverfill og Holmes fari beint í málið.
Mig grunar að Skabbi sé að prófa tímvélina hans Vlad. Svo gæti verið að hann hafi fengið hér öll lyklavöld.
Ef hann og Vlad hafa setið að sumbli við einhvert gott tækifærið, þá eru allar líkur á að Vlad hafi gefið honum lykilinn. Enda erfitt að halda kappanum úti í kuldanum þegar ákavíti kemst í spilið.
En slæmt er það ef gamla kempan er horfin á braut. O sei sei.
Fær sér í nefið
-
Ég var einu sinni í björgunarsveit. Reyndar ekki nema í tvær vikur, þá hætti ég því það var svo leiðinlegt. Gaman að segja frá því.
Engar áhyggjur. Skabbi hefur undanfarna daga verið blindfullur á Ölveri að syngja Dylan lög undir hvaða karókílagi sem er.
Það var magnað þegar hann söng Tangled Up in Blue við karókíundirspil Staying Alive þeirra Bee Gees bræðra.
Vjer getum eigi stillt oss um að nota um þetta hin frægu orð I have a bad feeling about this.
Eigi komum vjer eða tímavjelar vorar svo oss sje kunnugt við sögu í þessu sambandi þrátt fyrir getgátur um slíkt framar í þræðinum. Það eykur oss hins vegar ugg að um það leyti er Skabbi hvarf urðu miklar truflanir á örbylgjubakgrunnsgeislun frá tímasviðsjöfnunareiningu tímavjelar vorrar. Óttumst vjer að skrumgleypirinn (er í raun og veru er agnarsmátt svarthol er bjagar tíma og rúm umhverfis sig) hafi í þetta sinn gleypt Skabba fyrir fullt og allt.
Ætlum vjer samt að láta í ljós þá e.t.v. eigingjörnu ósk að þessar aðstæður/forsendur breytist og Skabbi snúi einhverntíma til baka úr Skrumgleypinum því fáir hafa sett meiri svip (í jákvæðri merkingu) á Gestapó en hann.
Að þessu sögðu vonum vjer að það mælist eigi illa fyrir að vjer tilkynnum að vjer látum oss líka að líkindum hverfa áður en árið er liðið. Það verður hins vegar í einungis 1-2 vikur til að fara í lítilsháttar Baggalútsafvötnun Lýsir yfir stríði á hendur Skrumgleypinum og setur öll gjöreyðingarvopn í viðbragðsstöðu.
Hóar í ,,félagana'' Við stöndum með þér! Hleður vélbyssuna
kemur með heykvísl og kyndla HANA! NÚ SKAL LEITAÐ OG EKKI GEFIST UPP FYRR EN SKABBI FINNST!
Eru til leitarhundar sem finna ákavíti?
ÉG hef nú skolli gott nef fyrir ákavíti... hnusar