Bart gerði símaat sem olli því að einhver sveitalubbi þurfti að borga gríðarháan símareikning.
Bart hringdi collect til Ástralíu til að komast að því hvort vatnið sérist rangsælis í áströlskum salernum. Bað svo þann sem varaði... strákling að tékka á hvort þetta væri eins í næsta húsi.... Það hús var hinnsvegar marga kílómetra í burtu og því varð símtalið mjög langt og reikningurinn þessvegna mjög hár.
Vissulega rétt hjá Kare... Isak en nákvæmara hjá Nermal.
Mér er nákvæmlega sama hvor ykkar spyr.
Ég má, ég má!
Í þættinum þar sem Hómer keppir í bólíng (kíló, keitu eða hvað það heitir aftur á íslensku) þá kemur í ljós að hann á Óskar. Rétti eigandinn hefur hins vegar verið strikaður út og nafn Hómers letrað í staðinn.
a) Hvaða leikari var þetta (nafn er ekki nauðsynlegt heldur hlutverkið og kvikmyndin sem viðkomandi fékk Óskar fyrir)
b) Af hverju hefur þessu verið breytt fyrir DVD útgáfuna?
c) [Aukaspurning] Fyrir hvaða kvikmynd fékk hinn leikarinn, sem nú er upprunalegur eigandi Óskarsins, hann?
Hva? Kann enginn neitt í Simpsonsfræðunum?
Hvar er Jóakim annars?
Bezti leikari í aukahlutverki, Dr. Haing S. Ngor. Nafnið á kvikmyndinni sést ekki.
Mig grunar að ástæðan fyrir breytingu á DVD-útgáfunni sé einhverjar lagaflækjur. Bandaríkjamenn...
Þú færð rétt fyrir þetta.
Nafnið á kvikmyndinni sést ekki, en hún var Killing Fields. Ngor lifði sjálfur útrýmingarnar í Kambódíu af og náði á endanum að komast til Bandaríkjanna. Í myndinni leikur hann ljósmyndara og fékk Óskarinn fyrir. Hann var seinna myrtur og því tóku Simpsons menn hann út og settu í staðinn náunga að nafni Don Ameche, en sá fékk Óskarinn fyrir hlutverk sitt í Cocoon.
Athyglisverð fræði, þó kannske svolítið út fyrir efnið, ef svo má að orði komast...
Alla vega: Nefnið hver er efst og hver neðst á hefndarlista Hómers. Aukastig fást fyrir fleiri atriði.
"Alright econosave, you just made the list!"
Efsta grunar mig að hafi verið "The Boy" (Bart) og neðst var Econosave.
Týnir inn aukastig
- Bill of Rights
- Grandpa
- fat free lard
- gravity
- Emmys
- Darwin
- H2WHOA!
- Billy Crystal
- God
- Soloflex
- the boy
- Stern Lecture Plumbing
- Econo Save
Held að þetta sé 100% hjá honum... en það er greinilega engin þáttastjórnandi í útsendingunni. Áfram með smurninginn!
Þetta er að sjálfsögðu rétt hjá olíurisanum. Áfram með smérið.
Dr. Grágrítið úrstkurðar B.Ewing látinn. Blóm og kransar afþakkaðir. Frjáls fjárfamlög móttekin í nafni hans á kosningarskrifstofu framsóknarfloksins.
Jókaim, endilega leggðu fyrir okkur spurningu.
Hvað ætlaði Hómer að kaupa fyrir peningana sem fóru svo í að kaupa saxófón Lísu?
Loftkælingu!
Mikið rétt.
Hómer: But Marge, am I doomed to spend the rest of my life, sweating like a pig?
Bart: Yeah, not to mention looking like a pig, eating like a pig.
Apu: Don't forget the smell!
Ég er nánast hneyksluð á að enginn hafi laumast til að stela réttinum á öllum þessum tíma!
Hvað varð til þess að Homer gerðist trúboði á kyrrahafseyju?
(Bónus og besservisserastig fyrir að vita hvern hann ákallaði í fluginu þangað og við önnur tækifæri...)