Ég hef verið að nota einkapóstinn meira en venjulega nýlega og það fer óendanlega í taugarnar á mér að það sem kallast á engilsaxnesku outbox/sent mail sé kallað "Sendi póst". Þetta hljómar einhvernvegin rangt og illskiljanlegt. Þætti mér hljómþýðara að kalla ummræddan hlekk "Sendur póstur" eða "Útsent". Það þætti mér samræmast betur hinum hlekkjaheitunum. Mögulegt er að þetta hafi verið rætt áður hér en við yfirlitskönnun á þráðaheitum fann ég það ekki. Vildi allavegana koma skoðun minni á framfæri varðandi þetta mál. Starir þegjandi út í loftið
Hóstar Ætti ég kannski að taka það sem vísbendingu að enginn svarar? Ákveður að prófa að sitja sem fastast.
Kemur með púða, kakó og nesti
Ég hef verið að nota einkapóstinn meira en venjulega nýlega og það fer óendanlega í taugarnar á mér að það sem kallast á engilsaxnesku outbox/sent mail sé kallað "Sendi póst". Þetta hljómar einhvernvegin rangt og illskiljanlegt. Þætti mér hljómþýðara að kalla ummræddan hlekk "Sendur póstur" eða "Útsent". Það þætti mér samræmast betur hinum hlekkjaheitunum. Mögulegt er að þetta hafi verið rætt áður hér en við yfirlitskönnun á þráðaheitum fann ég það ekki. Vildi allavegana koma skoðun minni á framfæri varðandi þetta mál. Starir þegjandi út í loftið
Að draga athyglina frá þessu eða?
Nei nei, það mál er í nefnd. Ég meinti nú bara þetta með lyklana sem ég og Vlad eigum. (Og eftirpurn kvenna að komast yfir þá.)
-
Getiði sagt mér hvernig ég kemst í sundlaugina eða apótekið ég sé ekkert skilti! Mótorinn Rýnir útí loftið eftir kennileitum sem gætu bent honum áleiðis
Raular
Ég er sammála.
Og hví er hlekkurinn á póststöðina mína alltaf rauðglóandi þó nærri ekkert sé í henni?
Þá er einhvert ólesið bréf í henni... hvað gæti það verið...
Sæmi ertu ekkert að verða þreyttur í rassinum, Sloppurinn gaf mér þessar fínu sessur Réttir Sæma eina
Jú takk annars er ég vanur löngum setum, sat einu sinni ofan á kistu með Kölska í, í 10 daga samfellt, svaf lítið þá daga. sest á sessuna Þetta er mikið betra, takk kæra Drífa.
Jújú, við erum nú á tíunda degi núna, hef einhvernvegin á tilfinningunni að við séum ekki að vekja neina athygli... Einhverjar hugmyndir?
Tölvupóstur eða einkapóstur til Enters, gæti virkað?
Það er augljóst afhverju þú kallast fróði... Svona er ég hæg.
Búin að senda póstinn, sjáum hvað gerist... Kemur sér betur fyrir á sessunni Má bjóða þér í kotru?
Sæmi minn kæri!!! Setuverkfallið hefur borið árangur. Stekkur hæð sína
Borist hafa boð frá æðri stöðum um að einmitt í þessum töluðu orðunum sé verið að "garfa í þessu" Gefur frá sér vellíðunarstunu
Sæmi! Ég býð þér í sjúss á Kaffi Blút til að fagna þessum ótrúlega árangri! Styður báðum höndum á mjaðmir, hallar sér aftur og hlær eins djúpum hlátri og unnt er