Núna fjós þitt bóndi brenn
búskap hætta munt þú senn
Reka fáir rollur enn
rukka bara ferðamenn
Ull nú bóndinn argur fær
finni hann á fjalli ær
Finni bóndi í fóðri lýs
fljótlega um kennir SÍS
Víst lítur sjaldan bóndi í bók.
Vill brennivín (og pínu kók).
Ef að blotnar úti hey
bölva flest öll bænda grey
Ef að bóndi brennivín
bragðar þá er hann víst svín.
Húsfreyjan æ bakar best
er bóndinn leggur a sinn hest
Um sauðburð blót i bræði kvaka
Bændur lengi þá oft vaka
Sér til kvánar baulurassa bændur völdu.
Bóndi kom í opna Skjöldu.
Boli nú á básnum grætur
Bóndann þú í verk hans lætur
Sér til kvánar baulurassa bændur völdu.
Bóndi kom í opna Skjöldu.
Grípur um kvið sér, leggst í fósturstellingu á jörðina og veltist um, emjandi af hlátri
Allt er þetta bölvað basl,
bændur tana sig í drasl.
Drasl og rusl og djöfuls skran!
Bónda fölan brennir tan.
Tannlaus Þorra bóndi blótar
og biður fyrir mjólkurkvóta.