Þegar haninn hreykir sér
hænan vísast nálæg er.
Þegar verður konan klúr
komin er hún víst á túr.
Liggi frúin glennt og gleið
getur bóndinn fengið reið.
Detti bóndinn böllinn á
beljur loksins næði fá.
Varúð, þið sem íhugið Atkins kúrinn:
Eti bóndinn aðeins fitu
eitthvað mun þá þjást af skitu.
Ef menn góðir ganga út
gá mætti í viskíkút
er þetta eins og það á að vera?
Hva? Þetta slapp.
Freti bóndinn feiknalega
flestir keyra utan vega.
Þegar öskrar bóndi og bölvar
bíst hann loks til tekju sölvar.
Semji bóndinn sjaldnar vísu
situr ljóðstafur í fýsu.
Ég tel raunar ljóst að þessi fullyrðing sé ekki rétt, en gæti átt við um einhverja.
Syngi bóndinn lettnesk lög
lækkar hitastigið mjög.
Brátt til rétta bóndinn fer
blandað hefur á pelager
(Ef bóndann fælist bölvuð merin
Brúkaður skal Land Roverinn
Bóndans akstur enga burði
hefur til að forðast skurði
Afvelta í bílsins braki
Bóndinn skríður út úr flaki
Bölvaður var bílsins framinn
bykkjan var svo illa tamin)
ef bóndakonan konu djáknans kleip í messu
grunar bónda að giftist lessu
Gerist bóndinn blár og rauður
býst ég við að hann sé dauður.
Þegar bóndinn hávært hrýtur
handa sinna frúin nýtur.