— GESTAPÓ —
Klístur
» Gestapó   » Vísindaakademía Baggalúts
     1, 2  
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Ég sjálfur 15/10/05 22:43

Ég þoli ekki klístur og þá sérstaklega að vera klístraður á fingrunum.
Hér vil ég koma af stað umræðu um þetta hefðbundna heimilisklísur, gosdrykkjaklístur, vinnustaðaklístur og allt annað klístur.
Hvað er það sem gerir kístur klístrað? Og hvernig er best að ná því burt?

Sönnun lokið.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Hexia de Trix 15/10/05 22:45

Já þetta er hvimleitt vandamál. Þegar ég var yngri reyndi ég að sleikja klístrið af fingrunum (svo framarlega sem klístrið var á annað borð ætt) en það hafði yfirleitt þveröfug áhrif. Grænsápa og sjóðandi heitt vatn er líklega besta vopnið. ‹Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann›

Alma Mater Baggalútíu • Kakómálaráðherra • Yfirbókavörður Baggalútíu • Forstöðumaður Bóka- og skjalasafns Baggalútíu
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Don De Vito 15/10/05 22:46

Lím er klístrað! ‹Verður spekingslegur á svip›

Doninn • Stríðsmangari Baggalútíska Heimsveldisins • Innflytjendamálaráðherra, maðurinn með stimpilinn • Settur forstjóri HSHB • Stórlax
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Hexia de Trix 15/10/05 22:48

Hálfþornað kók er klístrað. ‹Lítur skömmustulega í kringum sig og vonar að enginn hafi tekið eftir þeirri staðreynd að svona kókistar eiga faktískt séð aldrei að sjá kók öðruvísi en í fljótandi formi›

Alma Mater Baggalútíu • Kakómálaráðherra • Yfirbókavörður Baggalútíu • Forstöðumaður Bóka- og skjalasafns Baggalútíu
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Ég sjálfur 15/10/05 22:54

Ég fæ upp skemmtilegan hlekk þegar ég fletti upp orðinu klístur á Vísindavefnum, hlekkurinn fjallar um uppruna orðsins klám. Ekki alveg það sama, eða hvað?

Sönnun lokið.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Ég sjálfur 15/10/05 22:58

Og þetta er það sem ég fæ frá Wikipedia.

Sönnun lokið.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
B. Ewing 16/10/05 03:02

Minnismiðar með klístri eru hentugir þeim sem þurfa að klístra upp minnisatriðum. Svo eru jólakort klístruð á sinn hátt svipað og önnur bréf. Allskonar snyrtidótadótadót er meira ogminna klístrað á einn eða annan hátt. Sleikjóar og brjóstsykrar verða klístraðir er þeir hafa náð sambandi við (munn)vatn.

Siglingafræðingur Baggaflugs, teningaspilahúsasmíðameistari Baggalúts. •  • Stýrimaður Fjárfestinga og Margfeldisútvíkkunar Baggalútíska Heimsveldisins •  • Tryggingaráðherra Baggalútíu. Sendiherra S-Ameríku og Páskaeyju.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Hexia de Trix 16/10/05 10:13

Hm... ég hef nú aldrei gert tilraun þess efnis að innbyrða mikið af klísturgjörnu sælgæti og kyssa einhvern rétt á eftir. Ætli fólk festist saman?

‹Leitar að sleikjóum og fer að vekja Ívar›

Alma Mater Baggalútíu • Kakómálaráðherra • Yfirbókavörður Baggalútíu • Forstöðumaður Bóka- og skjalasafns Baggalútíu
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Limbri 16/10/05 13:39

Það er nokkuð ljóst að klístur inniheldur ósköpin öll af fiskiönglum í míkró-stærð. Annað er útilokað. Hættulegasta klístrið er samt slímið af ýsunni. Hún er botnæta og hefur líklega innbyrt umtalsvert magn af gömlum krókum. Hefur hún svo að öllum líkindum mjög þróað meltingarkerfi sem skilar áhrifum krókanna í slímið.

Hvernig þessir önglar komast á stofuborðið mitt eftir teiti er mér með öllu óskiljanlegt.

-

Þorpsbúi -
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Hexia de Trix 16/10/05 14:13

Það er ekki von að þú munir það ekki Limbri minn! Þú hefur líklega lognast út af í eigin teiti, drykkjurúturinn sem þú getur verið.

Alma Mater Baggalútíu • Kakómálaráðherra • Yfirbókavörður Baggalútíu • Forstöðumaður Bóka- og skjalasafns Baggalútíu
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Limbri 16/10/05 14:28

‹Dansar við sítar›

Eitthvað er það !

En annars hef ég fundið fyrir að klístur er misjafnt eftir að það þornar, sumt verður hrjúft viðkomu. Afar undarlegt í hæsta máta verð ég að segja.

-

Þorpsbúi -
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Hexia de Trix 16/10/05 14:29

Og sumt klístur verður sleipt eftir að maður reynir að þvo það í burtu. Til dæmis kók á parketi...

Alma Mater Baggalútíu • Kakómálaráðherra • Yfirbókavörður Baggalútíu • Forstöðumaður Bóka- og skjalasafns Baggalútíu
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Limbri 16/10/05 14:58

Nú er tyggjó líklega hægt að flokka sem klístur í hæstu gæðum. Þá er hnetusmjör einni afar klístrað. Merkilegt þykir mér því að eitt af húsráðum við að fjarlægja tyggjó, er klístrast hefur í hár, er að nudda hnetusmjör í það. Virðist það fjarlægja tyggjóið. Líklega einhverskonar 'mínus og mínus gera plús' áhrif.

-

Þorpsbúi -
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Ég sjálfur 16/10/05 16:53

Ég er kominn með ráð. Forðast allan mat sem er ríkur af járni, meira járn þýðir vafalaust meira af önglum og þar af leiðandi meira að klístri.

Sönnun lokið.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Limbri 16/10/05 16:58

Klístur í teppi er afar vandasamt. Slíkt klístur á það til að breytast svo í einhverskonar harða toppa á endunum á hárunum í teppinu. Er eina ráðið við því að kaupa stórvirka sláttuvél og bruna nokkrar ferðir yfir teppið. Ég mæli samt ekki með að kveikja í teppinu. Gamalt klístur virðist virka sem hinn öflugasti eldmatur.

-

Þorpsbúi -
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Ég sjálfur 16/10/05 17:03

Ætli það virki ekki að nota ryðeyði á gamalt klístur?

Sönnun lokið.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Börkur Skemilsson 19/10/05 16:38

Klístur er hið mesta bögg. Þoli ekki þegar hendur mínar klístrast. Á að finna eitthvað gegn þessu. Sammála Ég sjálfur.

GESTUR
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Tímaflakkarinn 26/10/05 17:15

Klístur er eitt af vandamálum 21. aldarinnar eins og þið eigið eftir að kynnast í þriðju heimstyrjöldinni.

     1, 2  
» Gestapó   » Vísindaakademía Baggalúts   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: