Ég var af gamni mínu að kíkja á heimavarnarliðið og sá þar að okkar ástkæri konungur, Hakuchi, er kominn með skemmtilega tölu í innleggjafjölda. 14141. Herra minn kær, það væri synd að skemma þessa tölu er það ekki?
Já ,vá og sá næsti er ,,bara'' með 11303. Um þrjúþúsund innleggjum minna.
Innleggjafjöldi hefur enga þýðingu fyrir mig. Ég er löngu kominn yfir það stig að harma kjaftæðið í mér á þessum vef, gerði það líklega einhvers staðar á áttunda þúsundinu.
Reyndar vil ég enn halda uppi mótmælum varðandi röðun á heimavarnarlistanum, þ.e. þeirri röðun sem birtist þegar smellt er á heimavarnaliðið. Til eru fávitar sem geta séð svona röðun og haldið að um keppni væri að ræða og dælt inn algerlega innantómum örinnleggjum í von um að klifra upp listann. Jafnvel geta þeir hinir sömu talið sér trú um að þeir séu að klifra upp einhvers konar virðingarstiga, sem þetta er ekki.
Nær væri að hafa aðalröðun eftir stafrófsröð virkra notenda, eða bara handahófskennda niðurröðun. Virkni yrði síðan ákvörðuð eftir einhverjum kúnstarinnar reiknireglum tæknibavíana Baggalútssamsteypunnar. Já, og sleppa öllum sætistölum.
Sjálfum er mér reyndar nokk sama nú orðið hvað ég hef mikið af innleggjum. Það hins vegar er gaman að sjá hverjir hafa verið virkastir og hverjir hafa dalað. Þess vegna skoða ég heimavarnarlistann. En nú ertu búinn að skemma þessa fínu tölu þannig að ég held að ég fari og geri eitthvað annað...
Gerðu það endilega.
Mundu að þú átt ansi skammt eftir í 11111. Þú ættir að halda í slíka tölu eins og þú eigir lífið að leysa. Svo fögur er hún.
Já, en þá hættir hann að tala. Veltir fyrir sér hvort það sé akkúrat það sem Hakuchi vill
Innleggjafjöldi hefur enga þýðingu fyrir mig. Ég er löngu kominn yfir það stig að harma kjaftæðið í mér á þessum vef, gerði það líklega einhvers staðar á áttunda þúsundinu.
Reyndar vil ég enn halda uppi mótmælum varðandi röðun á heimavarnarlistanum, þ.e. þeirri röðun sem birtist þegar smellt er á heimavarnaliðið. Til eru fávitar sem geta séð svona röðun og haldið að um keppni væri að ræða og dælt inn algerlega innantómum örinnleggjum í von um að klifra upp listann. Jafnvel geta þeir hinir sömu talið sér trú um að þeir séu að klifra upp einhvers konar virðingarstiga, sem þetta er ekki.
Nær væri að hafa aðalröðun eftir stafrófsröð virkra notenda, eða bara handahófskennda niðurröðun. Virkni yrði síðan ákvörðuð eftir einhverjum kúnstarinnar reiknireglum tæknibavíana Baggalútssamsteypunnar. Já, og sleppa öllum sætistölum.
Konungurinn hefur talað... að venju er ég sammála honum, einhvers konar handahófskennd röðun væri frábær...
Gerðu það endilega.
Mundu að þú átt ansi skammt eftir í 11111. Þú ættir að halda í slíka tölu eins og þú eigir lífið að leysa. Svo fögur er hún.
Já, ég skal halda í þessa tölu á sama hátt og þú hélst fast í 14141

Það er ekki langt í 11414 hjá mér... minnið mig á að stoppa þá Ljómar upp
minnir skabba á
Það var nú samt gaman að safna baunum í smá tíma...
Væri metingur í gangi mætti einnig raða eftir slaga- eða bókstafafjölda, jafnvel málfari eða frumleika í innleggjum. Slíkt myndi hinsvegar taka langan tíma og yrði líklega ekki uppfært nema einu sinni á misseri eða svo. Auk þess það byði upp á deilur við dómarann.Veltir því fyrir sér hvort það gætu ekki orðið svolítið spennandi deilur
Þessir Gestapóar eru klikk.
Það vitum vjer vel. Og það er gaman að vera klikk Ljómar upp.
Sjálfir náum vjer brátt hinni tignarlegu tölu 10000 í innleggjafjölda. Erum vjer þessa dagana að velta fyrir oss hvort af því tilefni skuli efna til gleðihátíðar, sorgarhátíðar eða láta sem ekkert sje.
Verður maður ekki heiðursfélagi við þúsund innslög? Ég tel það vel þess virði að öðlast heiðursfélagatitil, þó ég fái það útaf teningaleikjum og orðaleikjum sem eru mínar ær og kýr. Ljómar upp
Ég hélt að yfirburðinir væru augljósir og öllum kunnugir...
Hneigir sig virðulega og gengur hokin 5 skref aftur á bak, snýr sér síðan virðulega við og gegngur tignarlega á brott
T.C. væri langefstur á þessum lista ef ekki væri búið að ritskoða hann eins oft og raun ber vitni.
Rjettara sagt Glúmur væri það því hann er allir gestirnir hjer með örfáum undantekningum er teljandi eru á fingrum annarrar handar.