Ég vildi nú bara byrja á því að kynna mig fyrir ykkur greyin mín, því að kurteisi var jú í hávegum höfð í mínu uppeldi.
Ég er fuglinn sem aldrei flýgur sökum lofthræðslu, en hef nú loks fundið mér öruggt skjól hér á þessum sólríka og fallega stað.
Og mun ég nú hefja hreiðurgerð og barneignir. Ljómar upp
Hef altaf vitað að það væru storkarnin sem kæmu með börnin.
En er Kíkí ekki páfagaukur?
Andsk.....! Fyrirgefðu. Velkomin(n) Kíkí.
Jú mikið rétt. Þú manst eflaust eftir þeim bláa sem eitt sinn prýddi stofuna hans Afa á Stöð tvö. Það mun vera ég. Ég flúði okur þessa illa manns og eftir langt og strangt ferðalag yfir heimsins, höf endaði ég hér. Nú get ég loksins andað léttar. Stekkur hæð sína
Ég er frelsari allra páfagauka. Ég mun leiða þjóð mína til sigurs.

Þetta sagði nú Hitler líka, enda ófleygur eins og þú.
En hafðu ekki áhyggjur af því. Ef þú öðlast ríkisborgararétt í Baggalútíu þá er þess Þúsundáraríki nýfætt og þú getur skokkað með ef þú vilt, en þá tilheyrir þú Baggalútískuþjóðinni og leiðir engan neitt.
Því leiðtogi vor og alvaldur er Enter! En öðrum í alræðisstjórn hans munt þú kynnast síðar.
Var að vonast eftir að þú værir aðal páfagaukurinn úr sögum Enid Blyton. Hann hét líka Kíkí og sagði alltaf: "guð blessi kónginn og Kíkí líka"Starir þegjandi út í loftið
Vertu velkomin Kíkí. Frænka mín er kölluð Kíkí og því fer þetta nafn örlítið í taugarnar á mér en ég skal reyna að leiða það hjá mér.
Hmm... páfagaukurinn hans Afa á Stöð 2 hét reyndar Pási, var í eigu vinafólks fjölskyldu minnar og var svæfður fyrir einhverju síðan.
Ég hallast hinsvegar að því að þetta sé hvíti kakadúinn úr einhverjum þáttum á Stöð 2 sem er hætt að sýna...(gott ef það var ekki Enid Blyton sem að Salvador minntist á) hann/hún hét einmitt Kíkí.
Vertu velkomin og láttu fara vel um þig, ekki abbast upp á mig og litlu tánna mína. Otar litlu tánni ógnandi að fuglinum
Annars ertu velkomin niður í Undirheima ef þú vilt vera með í illverkum.
Já ég man eftir þessum þáttum, þau bjuggu á eyju? Getur það ekki passað? Byggðu svo óraunverulegasta strjáhús í sögu sjónvarps.
Vertu bara velkomin Kíkí. réttir Kíkí hnefafylli af stráum í hreiðrið og fjóra karamelluristaða ánamaðka
Þakka ykkur kærlega fyrir góðar móttökur og fallegar gjafir. Sem koma sér eflaust vel!
Sérstaklega karamelluristaðir ánamaðkar að hætti meistarans.
Úff Kíkí og Kinkí...ég á alltaf eftir að rugla ykkur saman sko. Velkomin samt.
Úff Kíkí og Kinkí...ég á alltaf eftir að rugla ykkur saman sko. Velkomin samt.
Ég var að hugsa það sama, ætli það lagist ekki þegar þeir/þau/þær fá mynd.
Vertu velkomin Kíki, og megi þér farnast vel hérna.
Úff Kíkí og Kinkí...ég á alltaf eftir að rugla ykkur saman sko. Velkomin samt.
Já. Þessi hugsun hvarflaði reyndar að mér líka. En svo ákvað ég að bjóða henni bara að gerast minn illi tvíburi. Og þar með er málið leystGefur frá sér vellíðunarstunu

Ætlið þið þá að vera með sömu mynd, nema mismunandi á lit eða speglaða? Það væri flott!
Velkominn Kíkí (þessi úr Ævintýrabókum Enidar vonandi)
Ég hnaut nú reyndar um þessa setningu í kynningu þinni "Og mun ég nú hefja hreiðurgerð og barneignir."
Það á eftir að verða skrautlegt. Ég hélt að fuglar eignuðust unga!Grípur um kvið sér, leggst í fósturstellingu á jörðina og veltist um, emjandi af hlátri