Ókei fyrir þá sem ekki vita þá er að vera málaliði, hermaður sem er á mála, stundar herþjónustu sem atvinnu gegn kaupi (Kallast mercenary á ensku).
Málaliði...Starir þegjandi út í loftið...ertu þá KR-ingur?Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
Ha, nei. Ég fylgist ekki með íslenskum fótbolta. Enda alger tíma- og peningasóun. Þá væri bara betra að vera heima að horfa á vegg eða eitthvað.
Vegg sem að þú átt eftir að mála eða hvað?Klórar sér í höfðinu
Hættir að hlusta á Sundlaug
Aldrei, aldrei, hætta að hlusta á Sundlaug. Hlustaðu vel á hann, hann er merkur maður, og reyndu frekar að svara honum með fullgildu svari.
Þakka þér fyrir, Hlíðarendakappi. Það má treysta þér til að siða þessa nýliða aðeins til. Þeir eru hortugri en mátti venjast þegar við vorum að stíga okkar fyrstu skref, enda sérðu hvað við höfum náð langt á hógværðinni.
Stekkur hæð sína Gunnari á Hlíðarenda til samlætis
Stekkur hæð sína í fullum herklæðum með Sundlaugi Já, þeir eru frekar góðir með sig, ekki sama auðmýktin og ég man að ég sýndi hérna fyrst, bar virðingu fyrir eldri gestapóum og hlustaði vel á öll þeirra ráð, og fór eftir þeim. En þessi flóðbylgja nýliða upp á síðkastið virðist bera með sér hortugheit og ósmekkvísi. Ég hef reynt að gera mitt besta til að siða þá til eins og þú segir og hef dregið atgeirinn óspart fram uppá síðkastið. Ég vil endilega að fleiri standi með mér í þessum málum svo við getum haldið síðunni í þeirri virðingarstöðu sem hún hefur verið í, ekki láta hana smátt og smátt breytast í annan h***.is.
Stekkur hæð sína í öllum nærklæðum
Já, við megum ekki slá af kröfunum, Gunnar minn.
Stekkur upp úr hjólastólnum og hrynur á gólfið Ég skal hjálpa ykkur herrar mínir, en ég verð eingöngu að notast við pennann sem vopn í þessari baráttu.
Viltu þá ekki kvitta hér fyrir mig væni? Réttir Sæma torskylið skjal með mörgum núllum
Ætlar að skrifa undir en blekið klárast í miðju essi
Ha, cæmi fróði, hmmm.
Birtist uppúr þurru með illann svip og blek í hendi
Hérna sæmi minn skrifaðu nú undir.
Það vantar illilega alvöru nýliðahrelli hjer, Frelli hefur alltof lítið sjest að undanförnu Prísar sig sælan að hafa aftur í fornöld skráð sig hjer áður en Frelli skráði sig.
Aldrei, aldrei, hætta að hlusta á Sundlaug. Hlustaðu vel á hann, hann er merkur maður, og reyndu frekar að svara honum með fullgildu svari.
Hann Sundlaugur er eflaust fínn. Hef svosem ekkert kynnst honum af viti, en mér fannst ég skýra það ágætlega hvað það er að vera málaliði og mér fannst hann koma með hálfasnalega athugasemd. En ég ætlaði nú ekkert að særa hann og það sem hann hefur skrifað eftir umrætt innlegg hefur allt saman verið mjög gáfulegt og algjörlega til fyrirmyndar.