Heil og sæl!
Hef ég um langa hríð fylgst með síðu þessari sem og fyrirbærinu hér er gengur undir nafninu Gestapó - og líkar vel. Hef ég því ákveðið að gerast nýgræðingur. Er nýkominn frá Síberíu þar sem ég þurfti að strita og púla allan liðlangan daginn undir ópum og skipunum frá vodkadrukknum fangavörðum. Allt þetta fyrir að binda endi á líf gamallar kerlingar. Fussumsvei! Að láta upplýstan spjátrunginn vinna tilgangslaus verk, eins og að grafa skurði í frosti. Því er ég feginn að hafa fundið mér nýjan samastað og vonast ég eftir góðum viðtökum .... annars hefur öxin mín engu gleymt Starir þegjandi út í loftið ...
Vertu velkominn á mælendaskrá. Láttu þér ekki bregða þó Gunnar H Mundason sýni þér atgeirinn sinn Hann á það ti sko Vonandi entust ullarsokkarnir vel í Síberíudvölinni.
Þakka fyrir það B. Ewing.
Ég held að Gunnar geri mér eigi mein. Ég og bróðir hans, Kolskeggur, erum mestu mátar. Hann er nú meiri væringinn. Hann drakk mig undir borðið í Istanbúl, sem hann kallar reyndar Miðgarð.
Ullarsokkarnir komu sér mjög vel. Ég hengdi þá upp til minningar fyrir ofan eldavélina mína, við hlið myndarinnar af mér og Vladimir Fuckov á pútuhúsi í Amman. Það voru tímarnir Ljómar upp
Vertu innilega velkominn Raskolnikof. Allir vinir Kolskeggjar eru vinir mínir (hvað er annars að frétta af karlinum?), auk þess sem mér líst bara vel á þig, vel að máli farinn, notar stóra stafi og punkta, kemur vel fyrir og ert kurteis, ólíkt sumum öðrum nýliðum. Ég vona að þú eigir eftir að finnar þig hérna, eins og stundum er sagt, enn og aftur velkominn.
B. Ewing, þú ættir nú að vita betur enn þetta, atgeirinn fá einvörðungu þeir sem koma illa fyrir, eða eru dónalegir, eins og Nördinn sem mjög ýkt dæmi. Atgeirinn er yfirleitt ekki dregin fram nema ástæða sé til þess, og fyrirfinnst engin slík í þessu tilviki.
Velkominn Ras...Raski... Rasko... Rassi.... æi eða eitthvað... Knúsar Rassa og treður notuðum snýtibréfum í vasana hans í leiðinni
Kolskeggur lagði vopnin á hilluna og rekur nú gerviblómabúð. Hann er alsæll þessa dagana.
Ég held að það sé æði góð byrjun hjá nýgræðingi að vera ekki sýndur atgeirinn. Ég hlakka mikið til Gestapóssamstarfs og lít björtum augum á framtíðina.
Velkominn Raskolnikof og njóttu vel.
Já vertu velkominn! Hóstar
Kom þú sæll og blessaður.
Megir þú njóta vistarinnar og hagaðu þér vel. Annars verður þú líflátinn.
Vonar að Hakuchi sé ekki að tala við sig, enda nýbúinn að hóta keisaranum lífláti
Kolskeggur lagði vopnin á hilluna og rekur nú gerviblómabúð. Hann er alsæll þessa dagana.
Ég held að það sé æði góð byrjun hjá nýgræðingi að vera ekki sýndur atgeirinn. Ég hlakka mikið til Gestapóssamstarfs og lít björtum augum á framtíðina.
Gerviblóm segirðu. Hann var alltof svo mikið blómabarn. Alltaf að búa til kransa og láta mig hafa. Hætti því reyndar um það leyti sem hann varð fjórtán. Hafirðu einhverjar skemmitlegar sögur af honum máttu endilega koma með þær.
B. Ewing, þú ættir nú að vita betur enn þetta, atgeirinn fá einvörðungu þeir sem koma illa fyrir, eða eru dónalegir, eins og Nördinn sem mjög ýkt dæmi. Atgeirinn er yfirleitt ekki dregin fram nema ástæða sé til þess, og fyrirfinnst engin slík í þessu tilviki.
Hann mætti vopnaður. Ég vildi ekki að hann héldi að hann gæti beint þessari öxi að öllum án þess að viðbrögðin yrðu í það minnsta viðeigandi.

Svoleiðis já, ég blindaðist af því að hann þekkti Kolskegg, það er satt hjá þér, spurning hvort maður skikki hann ekki til.
Já á meðan ég man Gunnar. Kolskeggur bað mig að skila til þín að hann sér eftir því enn þann dag í dag að hafa verið svo ragur að skilja þig eftir einan til að berjast. Ég sá votta fyrir tári þegar hann sagði mér þetta.
Já, ég mætti vopnaður ... enda er ég þekktur morðingi úr einni magnþrungnustu skáldsögu allra tíma.
Hver er ekki vopnaður nú til dags. Bendir á Rambóhnífinn, báðar skammbyssurnar og vélbyssuna. Bendir síðan á handsprengjurnar, flassbomburnar, reyksprengjurna, táragasið og kyrkingarvírinn. Og ef allt annað fer úrskeiðis er þessi alltaf góður Dregur fram piparúðann
Velkominn Raksks.. Rasklonniks....Rakslovns.. þú þarna með rússneska nafnið.
Ertu góður í sundi?