Ný persóna í Stundinni okkar, Engilráð. Ofvaxin önd í ofvöxnu hreiðri.
Ég er hrædd.
Guð minn almáttugur! Og ég er að leyfa börnunum að horfa á þennan ósóma!
Svívirðilegt!
Hræðilegt!
Nú? Mér finnst þetta nefninlega svo skemmtilegt.
ákveður að sniðganga Stundina okkar með öllu þrátt fyrir myndarlegan vöxt Birtu... enda hef ég Hexiu til að horfa á á meðan sem eru ekki slæm býtti
Þetta er agalegt. Knúsandi krakka um allan bæ.... agalegt!!!
Ah, já þetta er það sem er átt við þegar það er talað um hina glæsilegu, metnaðarfullu íslensku dagskrá; knúsandi endur.
Iss...hver horfir á sjónvarp?
Sendir foreldrum aulans einkapóst og biður þau að gæta þess að hún sé ekki að horfa á bannaðar myndir sjónvarpinu. Stundina okkar o.þ.h.
Viðurstyggilegt.
Er ekki hægt að matreiða eitthvað gott úr þessari önd bara ?
slefar
Góð hugmynd. Ég er að hugsa um að fara bara og ræna þessari vesælu önd. Svo gæti ég jafnvel gefið ömmu gömlu þetta ferlíki í jólagjöf. Það væri sko sparnaður í lagi.
Það ræktar enginn appelsínuendur kjáninn þinn.
þurrkar upp slefpollinn frá Kinký
Eru engin lög sem banna svona lagað?
Það eru til alls konar nefndir en enginn nefnd gegn óhuggnarlegum persónum í sjónvarpsþáttum sem tileinnkaðir eru börnum. Hvernig væri að koma svoleiðis á stað? Ég er alveg til í að taka sæti í þeirri nefnd þar sem ég tel mig vita muninn á óhuggnarlegum og huggulegum persónum í sjónvarpsþáttum ætluðum börnum.... held ég.