Þetta er ekki í fyrsta skipti sem ég bý til þráð um heimsendi, en nú er ég að sannfærast... Fuglaflensan gæti stökkbreyst yfir í svipaðan faraldur og spænskaveikin á sínum tíma... vitna í orð mín frá því 12 des í fyrra:
Nú er ég að farast úr heimsendahræðslu.
Væntanlegt er að hin ógnvænlega fuglaflensa fari að stökkbreytast og dreifast milli manna. Yrði það á við margar af heiftarlegustu pestum sem herjað hafa á mannkynið, svarti dauði og bólusótt.
Svo fer sjálfsagt að koma að því að berklarsýkillinn fari að stökkbreytast.
Misnotkun sýklalyfa er komin á það stig að margir sýklar hafa stökkbreyst og fundið vörn gegn fúkkalyfum og pensilíni og hræðslan eykst.
Sýkillinn miltisbrandur er að taka sig upp hér á landi, hefur reyndar verið lengi við líði en lítið orðið vart við hann...
Ofan á allar þessu bráðfeigu hættur bætast, hlýnandi veðurfar, sem gæti orðið að kólnandi veðurfari... hvort sem er yrði hörmung fyrir Ísland, hlýnun verður til þess að hættulegar lífverur berast hingað, eitraðir sniglar sem eyða gróðri, kolbrjálaðir kóngakrabbar sem skilja eftir sviðinn botn og svo mætti lengi telja... kólnandi veðurfar væri líklega enn verra, jöklar stækka, hafísár, uppskerubrestur, fiskileysi...
‹Fær sér Ákavíti til að róa taugarnar›
Sjá þennan þráð
Aðrir heimsendaþræðir eru t.d. þessi og þessi.
Hvað finnst ykkur, er heimsendir í nánd, þarf maður að fara að byrgja sig upp af niðursuðudósum og flytja í afskektan dal, þar sem maður hefur engin samskipti við annað fólk... hvað eigum við að gera?
Fær sér Ákavíti til að róa taugarnar
Knúsar Skabba
Nagaðu þurrkaða ætihvannarrót og þá færðu enga helvítis fuglaflensu.
Verður gripin skyndilegri ofsahræðslu
Leggst fuglaflensan á alla fugla? Endur líka? Skelfur við tilhugsunina
Mæli með 2 brettum af bökuðum baunum, ruggustól, haglabyssu og safna síðu skeggi í afskekta dalnum.
Snilld væri að hafa litla rafstöð svo hægt væri að hlusta á "Pabbi þarf að vinna"
Lúdó fyrir einn, og heeeeeeeelling af ákavíti.
Mæli með 2 brettum af bökuðum baunum, ruggustól, haglabyssu og safna síðu skeggi í afskekta dalnum.
Snilld væri að hafa litla rafstöð svo hægt væri að hlusta á "Pabbi þarf að vinna"
Lúdó fyrir einn, og heeeeeeeelling af ákavíti.
Nei! bíddu nú hægur, hvað með þráðlaust internet. Þá er þetta líka bara orði fínt.
Skv. mínum rannsóknum verður heimsendir árið 2012 þann 21 desember, daginn sem dagatal Maya-þjóðarinnar endar (þeim hafði tekist að reikna þetta út frá sveiflum í hegðun sólar og/eða vetrabrautarinnar). Þangað til verður mikil skálmöld, engu haldið aftur í hinni hinstu orustu um auðæfi og völd heimsins.
Þannig að enn eru 7 ár til að drekka ákavíti, komast yfir fleiri maka og yrkja kvæði.
Fær sér vænan gúlsopa af malt og appelsín og fullvissar sig um að hagglabyssan sé fullhlaðin
Ah, og ég sem hélt að við værum örugg eftir að spádómur fornegypta um að síðasta árið væri 2001 klikkaði. En kannski meintu þeir eitthvað „annað“ 2001?
þráðlaust internet? það þarf ekkert svoleiðis, eitt bagganet dugar til að komast hingað.
ertu að halda fram að það sé eitthvað merkilegra á veraldarvefnum?Hrökklast aftur á bak og hrasar við
Ah, og ég sem hélt að við værum örugg eftir að spádómur fornegypta um að síðasta árið væri 2001 klikkaði. En kannski meintu þeir eitthvað „annað“ 2001?
Ég held það sé samkvæmt dagatali múslima. (Eru þeir ekki annars með eitthvað annað?)
Jú, þeir byrjuðu að telja þegar við vorum komin upp í fimmhundruðogeitthvað. Hinsvegar eru Gyðingar komnir vel á sjötta árþúsundið.
Þetta fer nú að verða svolítið flókið fyrir þá sem vilja spá heimsendi...
Hah, ég er hér með ósvikið dagatal, sem segir nákvæmlega hvenær dómsdagur verður. Búið til af mér í samvinnu Guð og Andskotann. En þið megið ekki fá það! Liggaliggalá! Veifar dagatalinu framan í fólkið í kring í smástund en hverfur með púffi áður en nokkur nær að rífa það af sér
Laumar steinolíu í glas hvæsidillumeistarans og kveikir í
Andskotinn sjálfur! Það er best að sóa þá ekki þessum stutta tíma í svefn.
Dæsir mæðulega og fær sér vel af öllu
Tekur góðann sop
Þetta er sko alvöru sopi, maður bara brennur að innann.
Takk B.Ewing.
gefur b.ewing rembingskoss á öxlina
Andskotinn sjálfur! Það er best að sóa þá ekki þessum stutta tíma í svefn.
Dæsir mæðulega og fær sér vel af öllu
Tekur góðann sop
Þetta er sko alvöru sopi, maður bara brennur að innann.
Takk B.Ewing.
gefur b.ewing rembingskoss á öxlina