Er hægt að fremja hið fullkomna morð?
Ég held að eftir alla þá lögguþætti sem ég hef horft á, þá sé ég orðin dálítið sjóuð í því hvað þarf að passa til að ekki komist upp um mig en um leið orðin hrædd um að gera einhver mistök svo það kæmist upp um mig. En ég er einnig jafn viss um það að ef mér tækist að fremja hið fullkomna morð þá gæti ég ekki þagað yfir því, vegna þess að þá vissi enginn að það væri ég sem hefði framið hið fullkomna morð.
Þannig að þetta fellur eiginlega um sjálft sig þar sem þá væri þetta ekki lengur hið fullkomna morð því ég gæti ekki haldið kjafti.
Haldið þið að það sé hægt að fremja hið fullkomna morð og þá hvernig færir þú að því ?
(Er bara í þessum pælingum eftir sunnudagskvöld með Skjá einum þar sem það eru bara lögguþættir á þeim kvöldum, er nú svo sem ekki að fara að drepa neinn)
Um leið og ég upplýsi mína aðferð hér, þá er það ekki lengur fullkomið.
Góður punktur.
En hvað segið þið um að drepa einhvern með ísspjóti og bræða síðan morðvopnið ?
Það gæti gengið ef þú passar upp á hin tvöþúsund og fimmhundruð atriðin sem gætu farið úrskeðis.
Þetta vekur ýmsar flóknar spurningar. Ef vjer teljum oss t.d. vita um afar flókna aðferð til að fremja hið fullkomna morð en viljum ei nota hana, annaðhvort sakir áhugaleysis eða þess að betra sje að láta aðra um skítverkin, og skýrum því frá aðferðinni er þá um fullkomið morð að ræða sje aðferðin þess eðlis að engum nema oss gæti hafa dottið hún í hug þar eð í því tilviki vitum vjer auk morðingjans um aðferðina ? Eða er einungis eigi um hið fullkomna morð að ræða ef vjer ákveðum að hafa samband við lögregluna, t.d. af þeirri ástæðu að sú vitneskja að vera eini aðilinn auk morðingjans er veit um sökudólginn valdi oss hugarangri ?
Nauðsynlegt er að sjá til þess að ekkert "lík" finnist... það hjálpar.
Til þess að framkvæma morð sem hugsanlega væri hægt að komast upp með þarf verknaðurinn að vera mjög yfirvegaður, svo yfirvegaður að maður væri að öllum líkindun of geðveikur til að geta hrint jafn flóknu ferli í gang og fullkomnu morði.
Fullkomleikinn fyrirfinnst í náttúrunni og minnir mig að í bernsku hafi ég lesið í einni af Tinnabókunum um indíána sem beittu blástursörvum með eituroddum til að drepa.
Svo má alltaf beita svartagaldri að ég held til útrýmingar á óvinum og illþýði.
Hið fullkomna morð já.
Tjah. Bara ef við gætum spurt morðingja Geirfinns.
Hið fullkomna morð fyrirfinnst ekki í þeim heimi sem við lifum í hér og nú. Ekkert í þeim heimi er fullkomið. Fullkomleikann er aðeins að finna í hinum æðri heimi. Þar eiga allir hlutir og öll fyrirbæri sér hina fullkomnu fyrirmynd. Allir hlutir og fyrirbæri í okkar daglega heimi eiga síðan hluttekningu í þessum fullkomnu fyrirmyndum.
Blástursörvar ganga ekki núna þar færðu örugglega fínt DNA sýni.
Það mætti notast við þrýstiloftshylki úr Soda Stream tæki sem ekki væri hægt að rekja.Starir þegjandi út í loftið og styður fingri undir höku›
Þetta fer auðvitað eftir hverning skilgreint yrði orðið"fullkomið"
-
Ég hef allt af sagt að 100% sé bara bábilja, það eina sem er til er 99,9% það er fullkomnun!
þetta þýðir auðvitað að hið fullkomna inniheldur mistök?!?
Hleypur inn með stórt grunsamlegt belti.ALLALLALLALLALLALLALLALLALLA!!! Ýtir á afar grunsamlegan takka á beltinu.[s] Búmm. Hugsar: Hana þetta var nokkuð fullkomið! Allavega er engin leið að ná mér ...í heilu lagi.
Situr bara og starir á skjáinn
Þetta minnir mig á þátt/mynd (mynd í 2 hlutum) sem ég sá í sjónvarpinu einu sinni.
Það var um dómara sem dæmdi mjög oft í glæpamálum og var þessvegna sérfræðingur í allskonar svoleiðis málum.
Hann stundaði það sér til gamans að undirbúa nánast fullkomin rán.... sem hann svo aldrei framkvæmdi.
Fyrr en, hann komst í slagtogi við menn sem ákváðu að nýta þennan hæfileika.
Sá því miður ekki seinni hlutann bölvar svo ég veit ekki hvernig þetta endaði.
Það gæti hjálpað að vera læknirinn sem sér um krufninguna... Starir þegjandi út í loftið
Hm... já auðvitað! Gera morðið löglegt! Ljómar upp