Ég heiti Gaius Júlíus Sesar og er víst ekki lengur hæstráðandi og yfirhershöfðingi Rómarveldis.
Ég var í sakleysi mínu að stjórna Rómarveldi til heimsyfirráða þegar þessi gaur þarna, Vladimir Fuckov kemur í sinni svokölluðu tímavjel, sviðsetur dauða minn, rænir mér, setur mig í þessa tímavjel þarna og sendir mig til ársins 2005 í eitthvað heimsveldi sem hann kallar Baggalútía.
Nú þarf ég alveg að byrja upp á nýtt og og er bara einhver helvítis nýgræðingur með ritstíflu. Þessum Vladimir þarna fannst þetta allavega rosalega fyndið. Hálfviti!
Þú átt eftir að gleyma þessu Rómarveldi fljótt og örugglega. Það er eins og sjoppa við hlið Baggalútíu.
Ops vitlaus þráður
Hmm... Vlad er búinn að vera að væla yfir krúttskorti...
Kannski finnst honum þú vera krútt?
Sæll Caesar. Líttu á björtu hliðarnar. Nú sleppurðu við að vera stunginn til bana af vinum þínum.
Það er einmitt það sem hann gerði, réð einhvern gaur í þinginu til þess eins að drepa mig, eða það er að segja staðgengilinn minn.
Velkominn Sesar Hnegir sig fyrir keisaranum
Lyftir upp hendinni að gömlum sið. Jæja, nú ætla ég að renna í gegnum alla mannkynssöguna og allt sem ég missti af á meðan ég var fjarverandi. Tekur upp risastóra, þykka bók og byrjar að lesa
Horfir í kringum sig
Viðvaringar.
Labbar í burtu
Hvað er eiginlega viðvaringar?Hrökklast aftur á bak og hrasar við
Nauhh Júlís Sesar. Blessaður og vertu velkominn til Baggalútíu.
Hvað er eiginlega viðvaringar?Hrökklast aftur á bak og hrasar við
Það eru þeir sem kunna ekki að stafsetja viðvaðningar
Brosir út að eyrum og lyftir báðum höndum upp fyrir höfuð til merkis um að sér hafi þótt þetta afskaplega fyndið
Sjaldan hefur komið fram annar eins nýliði... velkominn...
Ég heiti Gaius Júlíus Sesar og er víst ekki lengur keisari Rómarveldis.
Ég var í sakleysi mínu að stjórna Rómarveldi til heimsyfirráða þegar þessi gaur þarna, Vladimir Fuckov kemur í sinni svokölluðu tímavjel, sviðsetur dauða minn, rænir mér, setur mig í þessa tímavjel þarna og sendir mig til ársins 2005 í eitthvað heimsveldi sem hann kallar Baggalútía.
Nú þarf ég alveg að byrja upp á nýtt og og er bara einhver helvítis nýgræðingur með ritstíflu. Þessum Vladimir þarna fannst þetta allavega rosalega fyndið. Hálfviti!
Vjer bjóðum yður velkominn til Baggalútíu og afsakið meðferðina Kæfir hlátur, tímavjelin er víst stundum 'örlítið' dyntótt og þetta gerðist alveg 'óvart' Reynir að setja upp sakleysissvip en gengur illa.
Byrjið á að kynna yður þetta Kemur með fullan gám af sagnfræðibókum og svo getið þjer að líkindum fengið háa stöðu í her Baggalútíu Ljómar upp.
Varúð, kæru félagar, hér eru brögð í tafli. Þessi svokallaði Gaius Júlíus Sesar er bara aumur loddari!
Hann kemur upp um sig í eigin kynningu þar sem segir (ég) er víst ekki lengur keisari Rómarveldis
Gaius Júlíus Sesar var aldrei keisari Rómarveldis!!!!!
Ég held þú ætti að lesa þér betur til í mannkynssögunni áður en þú reynir að leika á heiðvirt fólk, kallinn minn. Gættu að því að við Gestapóar erum víðlesin og fróð og föllum ekki fyrir svona leikaraskap.
Gaius Julius Caesar (c.100-44 BC) Roman general and statesman.
Segir svo á http://www.houseofnames.com/xq/asp.fc/qx/caesar-family-crest.htm.
Svo varla var hann mikill keisari. Eða hvað? Hvað gerir menn að keisurum? Ég fór á Keisarann í gamla daga. Ekki oft, en stundum er maður þyrstur. Þyrstur í að upplifa botninn svo það sé auðveldara að taka skrefin upp á við. Þegar hallanum líkur, tekur brattinn við. Við vorum bara börn í hermannaleik. Báðir óbreyttir. Metnaðurinn sagði okkur að stefna ofar. Tókum okkur titla. Enduðum báðir sem keisarar. Leikurinn endaði illa. En hvor okkar var Brutus? Varla var hann mikill vinur.
~Tu est madidus~
Sesar. Þú getur byrjað á að fá þér vinnu í Little Caesar's. Þeir munu örugglega ráða þig. Góð auglýsing.
Já einmitt... síðan getur þú líklega unnið þig upp í Gaius og síðan Keisara seinna meir... En ekki Keisara Baggalútíu... onei... það er upptekið djobb!