Dagbók á forsíðu Baggalúts. Hvað stendur á skiltinu?
Þraut mikil og háfleyg.
F.Á.U.H.U.Ú.G.
M.A.S.Í.K. F.V.U.K.X.G. Á.H.B.E.A.B.V.K.Þ. Nefndin.
Fyrsta málsgreinin er kannski:
Félag Áhugamanna Um Hástafi Undirstrik og Úrfellingamerki Gjörirkunnugt
Félag Áhugamanna Um Hluti Utan Úr Geimnum (næstum eins og F.Á.U.Á.U.Ú.G.).
Myglar Ansar Spurningum Í Kaffihléi. Fyrirlestur Verður Um Keisarann Xerxes Góða.
Áhugamenn Hittast Brosandi En Aukinheldur Bakaðar Verða Kleinur Þar.
-Nefndin
Ágætis dagskrá sýnist mér.
Þú þarft að þekkja svolítið til sögu Baggalúts til að skilja þetta.
F.Á.U.H.U.Ú.G. er Félag Áhugamanna um heimsókn utan úr geimnum. Félagið var undanfari KALÍS og annars félags F.Á.U.Á.U.Ú.G (auka Á er fyrir árás) sem urðu ein af fyrstu stoðum Baggalútíu. Reyndar má rekja stofnun Baggalútíu til pælinga út frá þessum félögum.
Flestir þræðirnir um þetta eru á Vísindaakademíunni, ef Enter hefur ekki hent þeim í Sorpminjasafnið.
Tjah ég veit nú ekki alveg hve miklu má uppljóstra um þessi mál.
F.Á.U.H.U.Ú.G. stendur þó huxanlega fyrir Félag Áhugamanna Um Heimsókn Utan Úr Geimnum
M.A.S.Í.K. gæti svo mögulega staðið fyrir Munið Aðalfund Samtakanna Í Kvöld.
Hjálpar það?
Æ, var ég að segja eitthvað sem ég mátti ekki segja Glúmur?
Heldur fyrir munninn og horfir í kringum sig
Hef ekki kafað svona djúpt í Menjasafnið Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
Svo má heldur ekki gleyma hinu mikilvæga FÁUG³LOOAKOE sem er endurbætt útgáfa af sumu af því er að ofan hefur verið nefnt.
Æ, var ég að segja eitthvað sem ég mátti ekki segja Glúmur?
Heldur fyrir munninn og horfir í kringum sig
Nei, nei, alls ekki, KALÍS bauðst bara kannski hugulsamlega til að græða í mig örflögu fyrir nokkrum misserum síðan sem gerir mér erfitt fyrir að kjafta frá leyndarmálum hverskonar.
Hér er eru í það minnsta tveir þræðir sem ég fann eftir örlítið grúsk:
http://www.baggalutur.is/viewtopic.php?t=576
http://www.baggalutur.is/viewtopic.php?t=628
Maður fær létt nostalgíukast við að skoða þetta.
Nostalgíukast já, svo sannarlega. En það ber greinilega brýna nauðsyn til að fara að halda formlegan fund í F.Á.U.Á.U.Ú.G. Gjaldkeri þess ágæta fjelags hefur eigi sjest langtímum saman og nauðsynlegt að finna nýjan.
Það sem er komið nokkurnvegin er þá allur fyrri helmingurinn. Ljómar upp
Félag Áhugamanna Um Heimsókn Utan Úr Geimnum. (Glúmur)
Munið Aðalfund Samtakanna Í Kvöld. (Glúmur) Fyrirlestur Verður Um Keisarann Xerxes Góða. (Stelpið)
Restin er ennþá á reiki þó að góðar líkur séu á bökuðum kleinum.
Nostalgíukast já, svo sannarlega. En það ber greinilega brýna nauðsyn til að fara að halda formlegan fund í F.Á.U.Á.U.Ú.G. Gjaldkeri þess ágæta fjelags hefur eigi sjest langtímum saman og nauðsynlegt að finna nýjan.
Fjármunir þess ágæta félags hafa svosem heldur ekki sést í langan tíma. Starir þegjandi út í loftið
En ég ber fullt traust til Dusilmennisins, ég get ekki ímyndað mér að hann sé að aðhafast eitthvað misjafnt.
Það er rétt hjá þér Glúmur. Dusilmennið fór að ráðum mínum og lét ömmu mína fá alla peningana til ávöxtunar. Síðan hef ég ekki heyrt meira frá honum.
Strýkur hökunni, hugsi
Þegar ég hugsa um það, þá hef ég ekki séð ömmu í þó nokkurn tíma.
Hringir áhyggjufullur í ömmu. Fær hljóðrituð skilaboð um að númerið sé ekki tengt
Gúlp
M-H-H-Ö-R-E-Þ
"Meiru helvítis hálfvitarnir, öndvegis rugl er þetta"?
M.O.K.S.O.L.A.Á.S.N.Þ.E.
JB + SG / JB + JGS x DO + KG / JíB +-JB= s.á.?