Getur einhver víðlesinn bókmenntalærður hafnarstúdent hjálpað mér að rifja upp úr hvaða ritverki þessar mjög svo minnistæðu línur eru. Þetta er alltaf ofarlega í huga mér en ég hreinlega kem því ekki fyrir mig hvar ég las þetta.
"Flestar vetrarverur eru annaðhvort brún- eða svarthærðar og hár þeirra er fallegt frá náttúrunnar hendi. Þær ættu aldrei að skola hár sitt né lýsa eða nota rauðan tón."
Þetta hefur kostað mig miklar vangaveltur en samtímis gagnast mér vel þegar þarf að halda uppi samræðum í kokteilboðum.
Kk. D.F Andersen
Ps, einnig væri gott að fá höfundar nafn.
Þetta eru glósur Heiðars nokkurs snyrtis, fyrir litgreiningarkvöld á KEA.
Er einhver sérstök ástæða fyrir því Doofus að líkamshár er umræðuefni þitt nánast í hvert einasta skipti sem þú skrifar niður stafkrók???
Þráhyggja e.t.v?
Nei hættu nú gamla uglan þín.
Ég hefi nú verið borin þungum sökum í gegnum tíðina en að vera haldin þráhyggju NEI TAKK..
Ég gengst við ofvirkni, misþroska og athyglisbrest en ÞRÁHYGGJU NEI
Blótar herfilega og rífur hár sitt
Nei hættu nú gamla uglan þín.
Ég hefi nú verið borin þungum sökum í gegnum tíðina en að vera haldin þráhyggju NEI TAKK..
Ég gengst við ofvirkni, misþroska og athyglisbrest en ÞRÁHYGGJU NEI
Blótar herfilega og rífur hár sitt
"Blótar herfilega og rífur í HÁR sitt".........
Þarf virkilega að segja meira?
FRÍK!
Stundið friðinn elskurnar mínar.
Doofus, horfðu frekar til snyrtingar á hormottunni en snyrtingar á öðrum stöðum. Af nógu er nú að taka væni minn.
Annars byrjaði þetta snemma.
http://www.baggalutur.is/viewtopic.php?p=3033&highlight=#3033
Hvað varðar fyrirspurn frá þráðarhefjanda þá hljómar þetta eins og eitthvað úr bókmenntaverkinu "Sannleikurinn um Ísland", en samt virkar þetta líka eins og eitthvað úr eldgamalli bók sem maður las oft sem krakki og minnir mig að sú hafi heitið "Karlinn í tunglinu" og var þar á ferðinni einhverskonar undarlegt upplýsingarit. Man einhver eftir þessari skræðu? Ég man að minnsta kosti að kjölurinn var blár, með nafn bókarinnar greypt í með hvítu letri
Ætli Skabbi hafi ekki bara sagt þetta á fyllerí, líklega á Eiðum '63.
-
er þetta ekki úr Roniju ræningjadóttur ?
Hvaða vitleysa er þetta í ykkur? Ég var með rétt svar!
Sjá félagsrit; Gagnrýni á líf og störf snyrtis.
Ef við gefum okkur að rétta svarið sé komið, á þá ekki sá sem kom með rétt svar að koma með næstu gátu?
Nei hættu nú gamla uglan þín.
Ég hefi nú verið borin þungum sökum í gegnum tíðina en að vera haldin þráhyggju NEI TAKK..
Ég gengst við ofvirkni, misþroska og athyglisbrest en ÞRÁHYGGJU NEI
Svívirðir líkamsleifar landsfeðranna