Nú er trú vor á falsmiðlunum endanlega orðin negatíf (áður var hún núll):
http://www.tonlist.is/Article.aspx?id=184
Hver í froðufellandi frosknautum er tilgangurinn með svona fölsunum eiginlega ?? Úr 5. sæti niður í 7. !? NEI ! Strunsar út af sviðinu og skellir á eftir sér. Safnar birgðum af eggjum, tómötum og heykvíslum og fer ásamt risastórum hópi að ónefndri byggingu í þeim tilgangi að efna til almennra óeirða
Bara þrjú lög á topp þrjátíu. Hefur ekker af þessum vanvitum hlustað á allan diskinn#%#$%.?
Lítið að marka stöðu Ragga B. Það er verið að gefa diskinn hans. Dýrastur á 999kr.
3 lög á topp 12. Gefur frá sér vellíðunarstunu Samt ekki nógu satt!Strunsar út af sviðinu og skellir á eftir sér
Þeim vantaði bara gott myndband til að geta fengið lagið spilað á ljósvakamiðlum.
Nákvæmlega Frelli. Ég spurði þá einhvern tímann að þessu á fyrirspurn og held því hafi ekki verið svarað.
Þetta eru lykilmistök í markaðssetningu. Seinagangur þeirra í þessum efnum nálgast það að vera ámælisverður. Á meðan þeir voru að draga lappirnar misstu þeir af einum besta leikstjóra Hollywood, Clint Eastwood, sem flaug af skerinu fyrir skömmu. Þetta er maður sem hefur leikstýrt og leikið í nokkrum bestu kábojmyndum allra tíma for kræíng át lát!
Af hverju fengu þeir Clint ekki til að gera kábojmyndband við köntrítónlistina? Hann hefði glaður hoppað ókeypis á tækifærið til að vinna með boðberum sannleikans.
Viðræður standa yfir við einn virtasta leikstjóra samtímans - í alvöru.
Athugar hvort ekki sé í lagi með símann
Dregur letilega fingur eftir yfirborði símaborðsins
Virðir rykið fyrir sér. Dustar það af sér. Andvarpar
Bíður enn
Snýr sér að Hakuchi og spyr
Fyrirgefðu má ég nota símann þinn?
Snýr sér að Hakuchi og spyr
Fyrirgefðu má ég nota símann þinn?
Því miður kæri Prins. Ég er að bíða eftir mikilvægu símtali.
Leyfist mér að benda þér á tíkallasímann í sjoppunni handan hornsins?
Horfir svipbrigðalaus á símann sinn
Klórar sér í höfðinuGeturðu kannski séð af tíkalli?
Klórar sér í höfðinuGeturðu kannski séð af tíkalli?
Sjálfsagt.
Stingur hendinni í vasann og tekur upp skínandi fallegan tíkall
Gerðu svo vel.
Þakka þér fyrir herra minn. Læðist út og lokar hljóðlega á eftir sér