Að hugsa sér...! setur vellyktandi í hárið og dregur fram vasapelann Jæja, þá er í uppsiglingu fyrsta dansiballið með Köntrísveit Baggalútíu, en það fer fram í sjálfu ókrýndu Alþýðuhúsi Reykjavíkur, Grandrokki á föstudagskvöldið kemur...
Hvað segiði...? Á ekki að pregða sér á ball?
Á góðri stund
með glaða lund
Það er svo dásamlegt
að vera hér og
geta hvað sem er...
Úje..!.. Meiri upplýsingar takk.
Sjá nánar í Dagbók á forsíðu og inn á www.grandrokk.is
Má ekki vera að því að spjalla meira enda eru lokaátökin í Lost í uppsiglingu...újeh, hvað maður er spenntur! Hvað er við upptök svarta reyksins? Ég bara spyr!
hmm... kannski maður mæti án þess að fá sér í glas. Vinna daginn eftir sko klukkan 5... hvenær byrjar geimið og hvað kostar inn?
Úff... fyrst Ívar varð á undan að segjast ætla að mæta þá lendir það væntanlega á mér að reyna að redda barnapössun... það er að segja ef mér batnar einhverntímann þessi árans pest!
Ég mæti sko örugglega á þetta. En klukkan hvað og hversu mikið kostar? Kann einhver svar við því?
Ég mæti, það verður dansaður línudans.
Starir þegjandi út í loftið, hvar skyldi það annars vera þetta Grandrokk
Ahh já þar sem merarnar eru leiddar undir mig til sæðingar...
Horfir dreyminn út í loftið.
Hvar ætli gamli mjólkurkassinn minn sé?
Hugsar um stund.
Skabbi og Ívar vinsamlegast skilið kassanum!!
Reikna með að við byrjum að spila fljótlega upp úr miðnætti og skilst að það eigi að kosta 1.000 krónur á mann að sjá herlegheitin.
Er eitthvað til í því að þið ætlið að fara norður á land með atriðið?
Reikna með að við byrjum að spila fljótlega upp úr miðnætti og skilst að það eigi að kosta 1.000 krónur á mann að sjá herlegheitin.
Allstaðar er reynt að græða á mér!
Þetta er nú ekkert merkilegt atriði að mér undanskildum. Fólk hefur stundað þetta frá aldaöðli upp í sveitum..