— GESTAPÓ —
Björgunarsveit Baggalútíu komin til Kapítals
» Gestapó   » Efst á baugi
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Glúmur 7/9/05 15:50

Boð hafa borist frá Ameríku um að Flugbjörgunarsveit Baggalútíu (109. herfylki stormsveita KALÍS) nálgist óðfluga New Orleans.

Innreið Björgunarsveitarinnar í Atlanta vakti lotningu nærstaddra

Gert var ráð fyrir að björgunarsveitin næði áfangastað annað kvöld en nýjustu fregnir herma að breyting gæti orðið á framkvæmdaáætlun hennar. Þar sem nær ómögulegt virðist að fá viðunandi hótelherbergi í New Orleans fyrir björgunarsveitina er að öllum líkindum farsælast að björgunarsveitin taki sér bólfestu í Atlanta. "Já, við heyrðum að það væri eiginlega búið að rústa öllu þarna í New Orleans og því frekar lítið eftir fyrir okkur að gera þar. Okkur fannst þess vegna skynsamlegra að vera bara áfram hérna í Atlanta og sjá hvort kraftar okkar nýtist ekki betur hér." sagði Glúmur#3881 flugbjörgunarsveitungi.

Glúmur#3881 og Glúmur#4501 kunnu tökin á ungviðinu

Ekki er víst hver viðbrögð þarlendra stjórnvalda verða við breyttu ferðaplani en í viðtali við Glúm#1088 sveitarstjóra kom fram að það væri ekki okkar að hafa áhyggjurnar. "Við erum auðvitað þjálfaðir sem Stormsveit og okkur virtist sem þessi Katrín hafi verið búin að framkvæma svotil allt sem er innifalið í okkar þjálfun þarna í New Orleans. Við munum því eyða næstu dögum uppi á hóteli í að fara yfir myndir þaðan, læra vel af þeim og láta svo til okkar taka hér í Atlanta"

Gagnvarpið er komið til að vera
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Ferrari 7/9/05 16:32

Loksins er komið allmennilegt lið til USA‹skála fyrir stormsveitinni›

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Vladimir Fuckov 7/9/05 16:35

Þarna sjest jafnframt bæði á myndunum og textanum að Glúmur er eins og alkunna er nær allir gestirnir hjer. Er þetta í fyrsta sinn sem svona skýr sönnun sjest fyrir þessu. Oss er fullkunnugt um einungis tvær undantekningar frá þessu en líklega eru þær 3-4.

Forseti Baggalútíu & kóbalt- & hergagnaframleiðsluráðherra o.fl. Baggalútíu • Staðfestur erkilaumupúki • Óvinur óvina ríkisins #1 • Virðulegasti Gestapóinn, krúttleysingi og EIGI krútt • Óafvitandi aðili ósamhverfra vensla
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
B. Ewing 7/9/05 16:53

Þetta er alger lágmarksaðstaða ‹Takur við lyklunum og dreifir á alla›

Siglingafræðingur Baggaflugs, teningaspilahúsasmíðameistari Baggalúts. •  • Stýrimaður Fjárfestinga og Margfeldisútvíkkunar Baggalútíska Heimsveldisins •  • Tryggingaráðherra Baggalútíu. Sendiherra S-Ameríku og Páskaeyju.
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
bauv 7/9/05 16:57

Hér eru svo myndir sem fréttaritari tók.


Fleiri á leiðinni


Goggur kom að stjórna
[img]


Baggalútur var vel búinn ef einhver ætlaði að mómæla


Sum staðar fór úr böndunum

Hvað, hver, hvur
LOKAÐ
» Gestapó   » Efst á baugi   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: