— GESTAPÓ —
Hæmz!
» Gestapó   » Vjer ánetjaðir
        1, 2, 3  
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Nornin 1/9/05 23:47

Þetta er bara Gelgjan gengin aftur ‹Fær hroll›
Er ekki hægt að fiffa kerfið einhvern veginn þannig að broskarlar geti ekki birst?

Femme fatale • Puppetmistress • Eigandi Júpíters • 
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Thebeibs 1/9/05 23:49

HAHAHA! Þið eruð svo fyndin.. Bé Ewíng er steiiiiktur :D híhí.. og akkuru má ég ekki brosa? Þúst norn bí happí!

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Aulinn 1/9/05 23:51

‹Horfir grimmt á Thebeibs›

Haldið mér, annars ræðst ég á hana.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
B. Ewing 1/9/05 23:52

Þú mátt brosa eins mikið og þú vilt en ég bendi þá á afar hentuga leið til þess. Þegar skrifað er, þá er listi yfir nokkrar algegnar tilfinninar til hliðar, smelltu á þá sem á við hverju sinni og þú ert búin að tjá okkur á afar fagran hátt hvernig þú hefur það. ‹Ljómar upp›‹Stekkur hæð sína›‹Brosir út að eyrum og lyftir báðum höndum upp fyrir höfuð til merkis um að sér hafi þótt þetta afskaplega sætt af thebeibs að finnast alheimstúlkunarvélin mín fyndin› Sannar að húmorinn er á réttum stað en fingurnir þurfa bara að passa hvar og á hverju þeir lenda.

Einnig leiðrétti ég nokkrar innsláttarvillur hjá mér eftirá til að gera allt snyrtilegt. Það má alveg líka. ‹Bíður spenntur eftir hvort thebeibs skoði og leiðrétti eitthvað›

Siglingafræðingur Baggaflugs, teningaspilahúsasmíðameistari Baggalúts. •  • Stýrimaður Fjárfestinga og Margfeldisútvíkkunar Baggalútíska Heimsveldisins •  • Tryggingaráðherra Baggalútíu. Sendiherra S-Ameríku og Páskaeyju.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Nornin 1/9/05 23:54

Þú mátt brosa ‹Brosir›
Þú mátt ulla ‹Ullar›
Þú mátt gera hvað sem þér sýnist, en gerðu það fyrir mig að tala íslensku en ekki þetta msn mál. Það á heima á msn og hvergi annarsstaðar.
‹Fer í handahlaup og heljarstökk aftur á bak›

Femme fatale • Puppetmistress • Eigandi Júpíters • 
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
dordingull 2/9/05 00:20

Nornin mælti:

Þetta er bara Gelgjan gengin aftur ‹Fær hroll›
Er ekki hægt að fiffa kerfið einhvern veginn þannig að broskarlar geti ekki birst?

Humm. Týnt peð með hvítt skegg. ‹Klórar sér í höfðinu›

Köngulóarapakonungsríkisarftakinn.
GESTUR
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Hvæsi 2/9/05 02:21

Unga barn.
Ekki ætla ég að mæla meisturum oss orð í munn, en eitt get ég þó sagt þér að svona gengur ei hér og var ég tekinn all harkalega á teppið fyrir miklu minna lögbrot en stafsetningarvillur sí og æ, og þakka ég "mentorum" mínum innilega fyrir leiðbeiningarnar, og mun ég ævinlega standa í þakkarskuld við þá.
Hlustaðu og lærðu unga barn, því það sem þú lest hér, eru gullmolar út í hinum stóra heimi.
‹Gefur frá sér vellíðunarstunu›

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Furðuvera 2/9/05 07:26

Semsagt, kæra Thebeibs, það sem þau eru að segja er:
"Oki þúst talaðu alminilega íslensku annars bara skaltu fara á h**i.is omg lol og broskallar eru þúst alleg ógisslega bannaðir hérna!!!!1"

Ég á systur sem talar þetta tungumál.

Tish ahh nay hush and fourpence, and an extra point for being so clevaaaaaah!
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Ferrari 2/9/05 09:55

aulinn mælti:

‹Horfir grimmt á Thebeibs›

Haldið mér, annars ræðst ég á hana.

‹ýtir aulanum áfram›

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Thebeibs 2/9/05 13:46

ojj ekkert svona ! :o

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Vladimir Fuckov 2/9/05 13:51

Vjer bendum yður sjerstaklega á vefsíðu þá er hugi.is nefnist. Það er yður fyrir beztu að halda yður þar en eigi hjer nema þjer sættið yður við reglur þær er hjer gilda og þá sjer í lagi eftirfarandi reglu:

1- Stafsetning og málfar skiptir miklu máli, vanda sig.

Sja einnig þetta: http://www.baggalutur.is/viewtopic.php?t=4011

Forseti Baggalútíu & kóbalt- & hergagnaframleiðsluráðherra o.fl. Baggalútíu • Staðfestur erkilaumupúki • Óvinur óvina ríkisins #1 • Virðulegasti Gestapóinn, krúttleysingi og EIGI krútt • Óafvitandi aðili ósamhverfra vensla
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Aulinn 2/9/05 13:57

‹Ræðst á Thebeibs›

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Thebeibs 2/9/05 14:03

Okei bits...

‹Horfir stífum augum á aulann.. já þúrt AULI!›

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Nornin 2/9/05 14:05

Jæja, þú ert þó búin að læra að nota sviðslýsingarnar. Það er framför.
Lærðu nú að stafsetja rétt og þá ertu í góðum málum.
‹Tekur fram réttritunarorðabók og réttir barninu›

Femme fatale • Puppetmistress • Eigandi Júpíters • 
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Hakuchi 2/9/05 14:05

Í guðanna bænum komdu aftur þegar þú hefur læknast af gelgjunni.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Dauðinn 2/9/05 14:07

Já! Passaðu þig eða ég færi þig ofar á listann!

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Von Strandir 2/9/05 14:07

‹Gapandi yfir því að sviðslýsingar eru ekki í stikkorðastíl, greinilegt að viðkomandi kann meira en hann gefur upp›

‹Borar í nefið›

GESTUR
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Hvæsi 2/9/05 19:57

Tel ég að réttast væri að hýða barndjöfulinn, ellegar framkvæma særingar.

        1, 2, 3  
» Gestapó   » Vjer ánetjaðir   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: