— GESTAPÓ —
Ósvífnar lygar.
» Gestapó   » Efst á baugi
        1, 2, 3, 4  
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Nornin 7/9/05 12:06

Suðureyri?
Bara næsti bær við mig ‹Ljómar upp›
Hvað segir þú um að kíkja í berjamó með mér á næsta föstudag?

‹Brosir út að eyrum og lyftir báðum höndum upp fyrir höfuð til merkis um að sér hafi þótt þetta afskaplega fyndið›

Femme fatale • Puppetmistress • Eigandi Júpíters • 
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Skabbi skrumari 7/9/05 12:10

Það er ekki seinna vænna væni, held það hafi verið næturfrost upp í Botnsheiði í nótt, en kannske getum við skutlast í Selárdalinn, hugsanlega er hægt að ná í nokkur aðalbláber þar, þó ég þekki það ekki nógu vel...

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Vladimir Fuckov 7/9/05 12:11

Júlía hefur grafið ýmislegt óþægilegt upp, t.d. (eins og fram kom í gömlum þræði) að vjer erum ung, einstæð móðir í Garðabæ, í fjarnámi í hjúkrun ‹Roðnar óstjórnlega og borar annarri stórutánni ofan í gólfið›.

Forseti Baggalútíu & kóbalt- & hergagnaframleiðsluráðherra o.fl. Baggalútíu • Staðfestur erkilaumupúki • Óvinur óvina ríkisins #1 • Virðulegasti Gestapóinn, krúttleysingi og EIGI krútt • Óafvitandi aðili ósamhverfra vensla
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Nornin 7/9/05 12:12

Já einmitt. Gætum líka farið í kirkjuna hans Samúels og kíkt að Uppsölum. Langt síðan ég hef farið þangað.
Ég verð á grænum skóda. Bíð eftir þér við sjoppuna um klukkan 19.23 á föstudagskvöldið.
Hentar það?

Femme fatale • Puppetmistress • Eigandi Júpíters • 
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Nornin 7/9/05 12:13

Vladimir Fuckov mælti:

Júlía hefur grafið ýmislegt óþægilegt upp, t.d. (eins og fram kom í gömlum þræði) að vjer erum ung, einstæð móðir í Garðabæ, í fjarnámi í hjúkrun ‹Roðnar óstjórnlega og borar annarri stórutánni ofan í gólfið›.

Já hvar er sá þráður niðurkominn. Man ekki hversu mikið ég hafði gefið upp um mig þar....

Femme fatale • Puppetmistress • Eigandi Júpíters • 
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Vladimir Fuckov 7/9/05 12:16

Hann er hjer:

http://www.baggalutur.is/viewtopic.php?t=5185

Og byrja þessar óþægilegu upplýsingar neðarlega á síðu 2 í þræðinum ‹Hugsar Júlíu þegjandi þörfina›.

Forseti Baggalútíu & kóbalt- & hergagnaframleiðsluráðherra o.fl. Baggalútíu • Staðfestur erkilaumupúki • Óvinur óvina ríkisins #1 • Virðulegasti Gestapóinn, krúttleysingi og EIGI krútt • Óafvitandi aðili ósamhverfra vensla
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Júlía 7/9/05 14:01

‹Hugsar stíft til Vladimars í gamaldags hjúkkubúningi. Svitnar enn meira í skítuga nærbolnum.›

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Isak Dinesen 7/9/05 14:03

Skabbi skrumari mælti:

hehemm... Júlía, þú veist nú að ég er fertug fiskvinnsludama frá Suðureyri... pólsk reyndar...

Já, og meðal annarra orða, þú hefur náð ágætis tökum á íslenskunni Skrúbljakova mín.

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
dordingull 14/9/05 17:22

Á þessari stundu kl. 17.20-14sept. 2005 er eftirfarandi frétt, frétt no.1 á forsíðu net- Moggans.

Sléttbakur strandaði í Suður-Afríku
Sléttbakur sigldi á land á Mnandi strönd, skammt frá Höfðaborg í Suður-Afríku í gær. Ítrekaðar tilraunir til að koma hvalnum aftur út á haf báru ekki árangur og var ákveðið að aflífa hvalinn með sprengiefni. Á myndinni sést lögreglumaður festa sprengiefni við haus hvalsins en það var síðan sprengt.

Dauður hvalur í Suður-Afiríku! Það er tíðindalaust á vesturvígstöðvunum.

P.S. Hversu margir menn,konur,og börn voru myrt þeim nauðgað eða dóu í slysum síðasta sólarhring í Höfðaborg.

Köngulóarapakonungsríkisarftakinn.
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Glúmur 14/9/05 17:30

Þetta var nú enginn venjulegur hvalur, var þetta ekki þrautþjálfaður hraðfrystihvalur?

Gagnvarpið er komið til að vera
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
dordingull 14/9/05 17:38

Það flaug augnablik að mér að Sléttbakur EA hefði strandað, en sá strax myndina af hræinu og nafn Suður-Afríku.
En það verður að gæta jafnræðis. Í morgun var sagt frá fólki sem var sprengt í tætlur svo það hefði verið ósanngjarnt að minnast ekki á hvalinn.

Köngulóarapakonungsríkisarftakinn.
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Vladimir Fuckov 14/9/05 17:58

Hvernig teljið þjer yður vita að Sljettbakur EA sje eigi dulbúinn sem hvalur ? ‹Hefur rannsóknir á hugsanlegum leka frá leyniþjónustu forsetaembættis Baggalútíu›.

Forseti Baggalútíu & kóbalt- & hergagnaframleiðsluráðherra o.fl. Baggalútíu • Staðfestur erkilaumupúki • Óvinur óvina ríkisins #1 • Virðulegasti Gestapóinn, krúttleysingi og EIGI krútt • Óafvitandi aðili ósamhverfra vensla
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
dordingull 14/9/05 19:27

Það er nánast öruggt. Hvalir eru ekki með Akureyrskt skráningarnúmer.
Hinn möguleikinn er öllu skuggalegri. Getur það verið að Suður-Afríski sléttbakurinn hafi verið dulbúinn frystitogari?

Köngulóarapakonungsríkisarftakinn.
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Glúmur 14/9/05 21:03

Máski ryksugukafhraðfrystitogari þá? ‹Ljómar upp›

Gagnvarpið er komið til að vera
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Prins Arutha 14/9/05 22:42

Sprengið bara allt draslið upp, þá þarf ekkert að vera að velta sér upp úr þessu meira.

Prins Arutha af Krondor
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
dordingull 14/9/05 22:51

‹Pantar þegar í stað 10.000 djúpsprengjur› Betra að hafa fleiri en færri. Það má þá nota afganginn á laxinn næsta sumar.

Köngulóarapakonungsríkisarftakinn.
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Prins Arutha 14/9/05 23:04

Af hverju að bíða til næsta sumars? Er ekki laxeldi í Grindavík?

Prins Arutha af Krondor
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
dordingull 14/9/05 23:34

Þarf fyrst að vera fullviss um að allir hvalir verði náhveli áður en ég fer að spandera púðri á maðkaþjófa. Og það verður vart fyrr en með vorinu nema þeir gefist upp fljótlega.

Köngulóarapakonungsríkisarftakinn.
LOKAÐ
        1, 2, 3, 4  
» Gestapó   » Efst á baugi   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: