Suðureyri?
Bara næsti bær við mig Ljómar upp
Hvað segir þú um að kíkja í berjamó með mér á næsta föstudag?
Brosir út að eyrum og lyftir báðum höndum upp fyrir höfuð til merkis um að sér hafi þótt þetta afskaplega fyndið
Það er ekki seinna vænna væni, held það hafi verið næturfrost upp í Botnsheiði í nótt, en kannske getum við skutlast í Selárdalinn, hugsanlega er hægt að ná í nokkur aðalbláber þar, þó ég þekki það ekki nógu vel...
Júlía hefur grafið ýmislegt óþægilegt upp, t.d. (eins og fram kom í gömlum þræði) að vjer erum ung, einstæð móðir í Garðabæ, í fjarnámi í hjúkrun Roðnar óstjórnlega og borar annarri stórutánni ofan í gólfið.
Já einmitt. Gætum líka farið í kirkjuna hans Samúels og kíkt að Uppsölum. Langt síðan ég hef farið þangað.
Ég verð á grænum skóda. Bíð eftir þér við sjoppuna um klukkan 19.23 á föstudagskvöldið.
Hentar það?
Júlía hefur grafið ýmislegt óþægilegt upp, t.d. (eins og fram kom í gömlum þræði) að vjer erum ung, einstæð móðir í Garðabæ, í fjarnámi í hjúkrun Roðnar óstjórnlega og borar annarri stórutánni ofan í gólfið.
Já hvar er sá þráður niðurkominn. Man ekki hversu mikið ég hafði gefið upp um mig þar....
Hann er hjer:
http://www.baggalutur.is/viewtopic.php?t=5185
Og byrja þessar óþægilegu upplýsingar neðarlega á síðu 2 í þræðinum Hugsar Júlíu þegjandi þörfina.
Hugsar stíft til Vladimars í gamaldags hjúkkubúningi. Svitnar enn meira í skítuga nærbolnum.
hehemm... Júlía, þú veist nú að ég er fertug fiskvinnsludama frá Suðureyri... pólsk reyndar...
Já, og meðal annarra orða, þú hefur náð ágætis tökum á íslenskunni Skrúbljakova mín.
Á þessari stundu kl. 17.20-14sept. 2005 er eftirfarandi frétt, frétt no.1 á forsíðu net- Moggans.
Sléttbakur strandaði í Suður-Afríku
Sléttbakur sigldi á land á Mnandi strönd, skammt frá Höfðaborg í Suður-Afríku í gær. Ítrekaðar tilraunir til að koma hvalnum aftur út á haf báru ekki árangur og var ákveðið að aflífa hvalinn með sprengiefni. Á myndinni sést lögreglumaður festa sprengiefni við haus hvalsins en það var síðan sprengt.
Dauður hvalur í Suður-Afiríku! Það er tíðindalaust á vesturvígstöðvunum.
P.S. Hversu margir menn,konur,og börn voru myrt þeim nauðgað eða dóu í slysum síðasta sólarhring í Höfðaborg.
Þetta var nú enginn venjulegur hvalur, var þetta ekki þrautþjálfaður hraðfrystihvalur?
Það flaug augnablik að mér að Sléttbakur EA hefði strandað, en sá strax myndina af hræinu og nafn Suður-Afríku.
En það verður að gæta jafnræðis. Í morgun var sagt frá fólki sem var sprengt í tætlur svo það hefði verið ósanngjarnt að minnast ekki á hvalinn.
Hvernig teljið þjer yður vita að Sljettbakur EA sje eigi dulbúinn sem hvalur ? Hefur rannsóknir á hugsanlegum leka frá leyniþjónustu forsetaembættis Baggalútíu.
Það er nánast öruggt. Hvalir eru ekki með Akureyrskt skráningarnúmer.
Hinn möguleikinn er öllu skuggalegri. Getur það verið að Suður-Afríski sléttbakurinn hafi verið dulbúinn frystitogari?
Máski ryksugukafhraðfrystitogari þá? Ljómar upp
Sprengið bara allt draslið upp, þá þarf ekkert að vera að velta sér upp úr þessu meira.
Pantar þegar í stað 10.000 djúpsprengjur Betra að hafa fleiri en færri. Það má þá nota afganginn á laxinn næsta sumar.
Af hverju að bíða til næsta sumars? Er ekki laxeldi í Grindavík?
Þarf fyrst að vera fullviss um að allir hvalir verði náhveli áður en ég fer að spandera púðri á maðkaþjófa. Og það verður vart fyrr en með vorinu nema þeir gefist upp fljótlega.