— GESTAPÓ —
Ósvífnar lygar.
» Gestapó   » Efst á baugi
     1, 2, 3, 4  
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
dordingull 24/8/05 02:46

Síðastliðinn vetur stalst ég til að gjóa augunum á forsíðu eins falsmiðilsins sem af tilviljun lá á borði sem ég gekk framhjá.
Og hvað haldið þið, ein af fréttunum á sjálfri forsíðunni fjallaði um þann stórmerka atburð að maður nokkur sem að sjálfsögðu naut nafnleyndar hafi fest bifreið sína upp á Fróðárheiði!
Þó ekkert hafi amað að og engin slys orðið fannst mér þessi frétt ótrúleg, að maðurinn hafi fest bifreið um hávetur á íslenskum fjallvegi kom bara ekki til greina.

Þessi augljósa lýgi falsmiðilsins varð mér til áminningar um að hafa nú augun hjá mér í stað þess að láta þau rápa út um allt.
En í kvöld varð mér óvart illilega á í messunni. Ég oppnaði semsagt forsíðu Morgunblaðsins á netinu og þar blasti við mér sem önnur af tveimur aðalfréttum þessi ótrúlegi atburður.

Innlent | mbl.is | 23.8.2005 | 21:58
Reykur í potti í Breiðholti

Að sjálfsögðu vakna ótal spurningar um það hvernig svonalagað getur gerst, en þar sem ég trúi því ekki að þessir fjallaapar eigi yfir höfuð potta, þá álít ég þessa frétt vera lygi rétt eins og bullið um manninn sem festi bílinn í vetur.

Ef fleiri en ég hafa orðir varir við svona augljósar falsanir væri ráð að safna þeim saman til sönnunar þess að sannleikann er hvergi að finna nema á BAGGALÚT.

Köngulóarapakonungsríkisarftakinn.
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
voff 24/8/05 10:11

Sundlaug var það en eigi pottur, gufa en eigi reykur, Árbær en eigi Breiðholt. Þeir eiga bara svona erfitt með að ná öllum smáatriðunum blessaðir blaðamennirnir.

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Rasspabbi 24/8/05 20:58

Þeir eru nú líka verulega takmarkaðir blaðamenn falsmiðlanna. Þessir apar sem ekki komast í vinnu hjá Baggalút vinna því sem leigupennar hjá hinum ýmsu falsmiðlum. Einunigs öndveigs lið fréttamanna vinnur við Baggalút, því getum við treyst góðum heimildum og öruggri og heiðarlegri vinnu.

Ætlar enginn að gera neitt í þessu Morgunblaði!? Þetta er næstum á hverju einasta eldhúsborði. Gjörsamlega óþolandi ástand! ‹Blótar herfilega og rífur hár sitt og skegg›

Rasspabbi - Atvinnulaus fyllibytta - Sæmdur heiðursorðu bagglútíska heimsveldisins af Hakuchi - Bruggari í tómstundum
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Vladimir Fuckov 26/8/05 11:15

Já, ástandið er ófagurt. Vjer neitum alfarið að trúa að fleiri sjeu neikvæðir gagnvart aðild Norðmanna að friðarferli, að bílvelta hafi orðið í Grímsnesi í nótt og að tveggja karlmódela sje leitað í Kanada. Þó er hugsanlegt að íbúar Flórída sjeu að búa sig undir heimsókn fellibyls.

Forseti Baggalútíu & kóbalt- & hergagnaframleiðsluráðherra o.fl. Baggalútíu • Staðfestur erkilaumupúki • Óvinur óvina ríkisins #1 • Virðulegasti Gestapóinn, krúttleysingi og EIGI krútt • Óafvitandi aðili ósamhverfra vensla
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Hakuchi 26/8/05 11:28

Hvernig ætli það sé að sjúga negul upp í nefið?

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
B. Ewing 26/8/05 12:01

Hakuchi mælti:

Hvernig ætli það sé að sjúga negul upp í nefið?

Það er bara ein leið itl að komast að þvi ‹Glottir eins og fífl og býður Hakuchi negul›

Siglingafræðingur Baggaflugs, teningaspilahúsasmíðameistari Baggalúts. •  • Stýrimaður Fjárfestinga og Margfeldisútvíkkunar Baggalútíska Heimsveldisins •  • Tryggingaráðherra Baggalútíu. Sendiherra S-Ameríku og Páskaeyju.
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Hakuchi 26/8/05 12:01

Þú fyrst.

‹Beinir skammbyssu að Ewing›

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
B. Ewing 26/8/05 12:06

Allt í kei. ‹Tekup smáslurk af negul milli tveggja fingra og undirbýr innsog. Blæs afar nett á negulinn án þess að nokkuð sjáist rétt áður en byrjar að snörla ógurlega.› Hhhhhhnnnhhhnn!!! Sko ekkert mál. Finnst varla nokkuð. ‹Heldur aftur af hnerrakasti og horfir á Hakuchi með pókersvip. › Nú þú.. ‹Styður báðum höndum á mjaðmir, hallar sér aftur og hlær eins djúpum hlátri og unnt er›

Siglingafræðingur Baggaflugs, teningaspilahúsasmíðameistari Baggalúts. •  • Stýrimaður Fjárfestinga og Margfeldisútvíkkunar Baggalútíska Heimsveldisins •  • Tryggingaráðherra Baggalútíu. Sendiherra S-Ameríku og Páskaeyju.
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Hakuchi 26/8/05 12:10

Hænsn.

‹Sniffar fjall af negli›

Húúúúú.....

Hressandi.

‹Líður út af í sæluvímu›

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Nafni 26/8/05 12:56

‹setur kodda undir höfuð Hakuchis og breiðir álteppi yfir hann.....muldrar›..„víst ertu kóngur klár“.... ‹fer›

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Limbri 26/8/05 15:48

Eru menn að fá sér í nefið hér og enginn býður mér af því ?

‹Fær sér vel útilátið fjall af eðal þýskum forseta›

-

Þorpsbúi -
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Tigra 26/8/05 16:00

Hah! Þið eruð með svo lítil nef að það er ekkert að marka!
Ég gæti troðið ykkar nefi inn í mitt og ekki fundið fyrir því!
‹Sniffar harðfisksflak í heilu lagi›

Nornakisa • Dýramálaráðherra • Lyklavörður Pyntingaklefans • Sérlegur Músaveiðari Baggalútíska Konungsdæmisins • Konunglegur listmálari við hirðina • Fólskulegur Ofsækjandi Þarfagreinis
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
B. Ewing 26/8/05 16:14

Það er nóg eftir af negul, fáðu þér. ‹Rettir að Limbra›

Siglingafræðingur Baggaflugs, teningaspilahúsasmíðameistari Baggalúts. •  • Stýrimaður Fjárfestinga og Margfeldisútvíkkunar Baggalútíska Heimsveldisins •  • Tryggingaráðherra Baggalútíu. Sendiherra S-Ameríku og Páskaeyju.
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Sindri Indriði 30/8/05 23:22

Hvað er eiginlega á seyði hér?

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Isak Dinesen 31/8/05 13:29

Eftirfarandi hef ég orðið var við:

Tilvitnun:

Mel Gibson þykir bestur kvikmyndaleikara. AP

mbl.is 13.12.2004

og

Tilvitnun:

Ók gegn einstefnu á Ísafirði

mbl.is 14.6.2004

Einnig þótt mér þetta magnað:

Tilvitnun:

Mikil hungursneyð hafin í Súdan

mbl.is 9.6.2004

Og eftirfarandi var auðvitað bara fáránlegt:

Tilvitnun:

Fattouh mun taka tímabundið við af Arafat
[...]
þrátt fyrir að ýmsir hafi látið í ljósi efasemdir um að Fattouh, sem þykir ekki hafa látið mikið að sér kveða, sé alsendis óhæfur til að gegna embættinu.

mbl.is 10.11.2004

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Isak Dinesen 31/8/05 13:33

En auðvitað er magnaðasta „fréttin“ sem ég hef rekist á, þessi:

Tilvitnun:

Látnir tína upp rusl í Hafnarfirði

mbl.is (dagsetning gleymd)

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Vladimir Fuckov 31/8/05 13:34

Isak Dinesen mælti:

En auðvitað er magnaðasta „fréttin“ sem ég hef rekist á, þessi:

Tilvitnun:

Látnir tína upp rusl í Hafnarfirði

mbl.is (dagssetning gleymd)

Skv. upplýsingum vorum er þetta reyndar aldrei þessu vant satt og því spyrjum vjer: Hvaða rusl var um að ræða og hver átti það ?

Forseti Baggalútíu & kóbalt- & hergagnaframleiðsluráðherra o.fl. Baggalútíu • Staðfestur erkilaumupúki • Óvinur óvina ríkisins #1 • Virðulegasti Gestapóinn, krúttleysingi og EIGI krútt • Óafvitandi aðili ósamhverfra vensla
GESTUR
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Hvæsi 31/8/05 14:36

Slúðurmiðill einn er aðsetur hefur á veraldarvefnum svokallaða er að ljúga uppá meðlim Gestapó !!!!!!!!!

http://content.amplovesyou.net/image/?pic=827_18

Svona blaðamennska er fyrir neðan allar hellur.
‹Blótar herfilega og rífur hár sitt›

LOKAÐ
     1, 2, 3, 4  
» Gestapó   » Efst á baugi   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: