Síðastliðinn vetur stalst ég til að gjóa augunum á forsíðu eins falsmiðilsins sem af tilviljun lá á borði sem ég gekk framhjá.
Og hvað haldið þið, ein af fréttunum á sjálfri forsíðunni fjallaði um þann stórmerka atburð að maður nokkur sem að sjálfsögðu naut nafnleyndar hafi fest bifreið sína upp á Fróðárheiði!
Þó ekkert hafi amað að og engin slys orðið fannst mér þessi frétt ótrúleg, að maðurinn hafi fest bifreið um hávetur á íslenskum fjallvegi kom bara ekki til greina.
Þessi augljósa lýgi falsmiðilsins varð mér til áminningar um að hafa nú augun hjá mér í stað þess að láta þau rápa út um allt.
En í kvöld varð mér óvart illilega á í messunni. Ég oppnaði semsagt forsíðu Morgunblaðsins á netinu og þar blasti við mér sem önnur af tveimur aðalfréttum þessi ótrúlegi atburður.
Innlent | mbl.is | 23.8.2005 | 21:58
Reykur í potti í Breiðholti
Að sjálfsögðu vakna ótal spurningar um það hvernig svonalagað getur gerst, en þar sem ég trúi því ekki að þessir fjallaapar eigi yfir höfuð potta, þá álít ég þessa frétt vera lygi rétt eins og bullið um manninn sem festi bílinn í vetur.
Ef fleiri en ég hafa orðir varir við svona augljósar falsanir væri ráð að safna þeim saman til sönnunar þess að sannleikann er hvergi að finna nema á BAGGALÚT.
Sundlaug var það en eigi pottur, gufa en eigi reykur, Árbær en eigi Breiðholt. Þeir eiga bara svona erfitt með að ná öllum smáatriðunum blessaðir blaðamennirnir.
Þeir eru nú líka verulega takmarkaðir blaðamenn falsmiðlanna. Þessir apar sem ekki komast í vinnu hjá Baggalút vinna því sem leigupennar hjá hinum ýmsu falsmiðlum. Einunigs öndveigs lið fréttamanna vinnur við Baggalút, því getum við treyst góðum heimildum og öruggri og heiðarlegri vinnu.
Ætlar enginn að gera neitt í þessu Morgunblaði!? Þetta er næstum á hverju einasta eldhúsborði. Gjörsamlega óþolandi ástand! Blótar herfilega og rífur hár sitt og skegg
Já, ástandið er ófagurt. Vjer neitum alfarið að trúa að fleiri sjeu neikvæðir gagnvart aðild Norðmanna að friðarferli, að bílvelta hafi orðið í Grímsnesi í nótt og að tveggja karlmódela sje leitað í Kanada. Þó er hugsanlegt að íbúar Flórída sjeu að búa sig undir heimsókn fellibyls.
Hvernig ætli það sé að sjúga negul upp í nefið?
Það er bara ein leið itl að komast að þvi Glottir eins og fífl og býður Hakuchi negul
Allt í kei. Tekup smáslurk af negul milli tveggja fingra og undirbýr innsog. Blæs afar nett á negulinn án þess að nokkuð sjáist rétt áður en byrjar að snörla ógurlega. Hhhhhhnnnhhhnn!!! Sko ekkert mál. Finnst varla nokkuð. Heldur aftur af hnerrakasti og horfir á Hakuchi með pókersvip. Nú þú.. Styður báðum höndum á mjaðmir, hallar sér aftur og hlær eins djúpum hlátri og unnt er
Hænsn.
Sniffar fjall af negli
Húúúúú.....
Hressandi.
Líður út af í sæluvímu
setur kodda undir höfuð Hakuchis og breiðir álteppi yfir hann.....muldrar..víst ertu kóngur klár.... fer
Eru menn að fá sér í nefið hér og enginn býður mér af því ?
Fær sér vel útilátið fjall af eðal þýskum forseta
-
Hah! Þið eruð með svo lítil nef að það er ekkert að marka!
Ég gæti troðið ykkar nefi inn í mitt og ekki fundið fyrir því!
Sniffar harðfisksflak í heilu lagi
Það er nóg eftir af negul, fáðu þér. Rettir að Limbra
Eftirfarandi hef ég orðið var við:
Mel Gibson þykir bestur kvikmyndaleikara. AP
mbl.is 13.12.2004
og
Ók gegn einstefnu á Ísafirði
mbl.is 14.6.2004
Einnig þótt mér þetta magnað:
Mikil hungursneyð hafin í Súdan
mbl.is 9.6.2004
Og eftirfarandi var auðvitað bara fáránlegt:
Fattouh mun taka tímabundið við af Arafat
[...]
þrátt fyrir að ýmsir hafi látið í ljósi efasemdir um að Fattouh, sem þykir ekki hafa látið mikið að sér kveða, sé alsendis óhæfur til að gegna embættinu.
mbl.is 10.11.2004
En auðvitað er magnaðasta fréttin sem ég hef rekist á, þessi:
Látnir tína upp rusl í Hafnarfirði
mbl.is (dagsetning gleymd)
En auðvitað er magnaðasta fréttin sem ég hef rekist á, þessi:
Látnir tína upp rusl í Hafnarfirði
mbl.is (dagssetning gleymd)
Skv. upplýsingum vorum er þetta reyndar aldrei þessu vant satt og því spyrjum vjer: Hvaða rusl var um að ræða og hver átti það ?
Slúðurmiðill einn er aðsetur hefur á veraldarvefnum svokallaða er að ljúga uppá meðlim Gestapó !!!!!!!!!
http://content.amplovesyou.net/image/?pic=827_18
Svona blaðamennska er fyrir neðan allar hellur.
Blótar herfilega og rífur hár sitt