Nei, enda hafa þessir Portúgalir ekki enn lært að tendra eld nema þá helst stöku slökkviliðsstjóri. Eða var það á Spáni?
Starir þegjandi út í loftið
[Þetta innlegg var ritskoðað, enda bara tilgangslaus svívirðing út í náungann... Skabbi]
Er ekki einhver friðargæsluliði sem getur sparkað duglega í afturendann á Mikjáli Máttuga og gert innleggin hans tóm?
Ég gæti það hæglega hérna... en væri það ekki of grimmt við aumingja nýliðann?
En væri ekki í lagi að taka innlegg eins og þetta hér fyrir ofan og eyða því?
Til þess eins að setja fordæmi? Sýna honum að þó innihaldsrýr/laus innlegg séu alveg liðin, er ekki vel séð að vera með háðsglósur og ómarkvissar móðganir (markvissar móðganir eru annað mál) gagnvart öðrum gestum?
Skabbi hefur úrskurðað. Mér fannst þetta hálfgerður óþarfi, enda máttlaust fret í kauða. En Skabbi ræður, skál fyrir því! xT