— GESTAPÓ —
Tilskipanir Evrópusambandsins um kokteila
» Gestapó   » Efst á baugi
     1, 2  
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Rasspabbi 20/8/05 18:57

Mér bárust þær fregnir til eyrna að Evrópusambandið hefði gefið út tilskipanir um kokteila ýmiskonar. Má þar nefna að eggjakokteill telst ekki eggjakokteill nema að svo og svo mikið af eggjum og öðru sulli sé í kokteilnum. Þetta er auðvitað bráðnauðsynlegt og hverrar krónu, eða evru, virði að eyða skattfé í þessháttar tilskipanir.

Þar sem áfengisneysla er gríðarleg hér á Baggalút er ekki úr vegi að herða á reglum um hvað telst t.d. ákavíti, í hvurslags umbúðum þesskonar áfengi á að vera o.s.frv.

Mér þykir það í hæsta máta óeðlilegt að í skriffinskuríki sem Baggalútur er að ekkert slíkt skuli vera til. Ég legg til að sir Ruglubulli taki þetta mál að sér.
Þá væri kannski hægt að skipa í nefnd og ráða ennþá frekar framúr þessu.
Ég býð mig hérmeð fram í þessa mikilvægu nefnd sem gæti, til lengri tíma litið, haft veruleg áhrif á áfengisneyslu Bagglýtinga.

Rasspabbi - Atvinnulaus fyllibytta - Sæmdur heiðursorðu bagglútíska heimsveldisins af Hakuchi - Bruggari í tómstundum
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Mikill Hákon 20/8/05 20:09

Kokteilar? Hahahahahaha, ég hef ekki heyrt minnst á þá síðan ég var 14 ára, en eftir það voru þeir ekki nógu sterkir.

Mikill Hákon • Keisari Baggalútíu • Eigandi sálar Vambans • Sendiherra Baggalútíu í Afríku
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Hexia de Trix 20/8/05 22:33

Kokteilar eru nú bara jafn sterkir og blandarinn vill hafa þá.

‹Hellir Stroh 80 út í kakóið sitt›

Alma Mater Baggalútíu • Kakómálaráðherra • Yfirbókavörður Baggalútíu • Forstöðumaður Bóka- og skjalasafns Baggalútíu
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Ívar Sívertsen 20/8/05 22:53

‹fær sér vodka 50% og stroh 80% í hristarann og hristir› tammtarammtammtamm...‹opnar hristarann og drekkur innihaldið› AAAAAAAHHHHH þetta var hressandi ‹sofnar›

Ráðherra drykkjarmála, spillingarmála, ummála og löggiltur oftúlkur, kantor í hverri einustu andskotans messu sem haldin er og spangólari ríkisins. Forseti skásambandsins.
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Hexia de Trix 20/8/05 22:55

‹Ruslar Ívari upp í hjólbörur og reynir að keyra hann að rúminu. Gefst upp og setur púða undir hausinn á kallinum í staðinn›

Alma Mater Baggalútíu • Kakómálaráðherra • Yfirbókavörður Baggalútíu • Forstöðumaður Bóka- og skjalasafns Baggalútíu
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Ívar Sívertsen 20/8/05 22:59

ZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZ

Ráðherra drykkjarmála, spillingarmála, ummála og löggiltur oftúlkur, kantor í hverri einustu andskotans messu sem haldin er og spangólari ríkisins. Forseti skásambandsins.
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Rasspabbi 21/8/05 03:20

Að rusla manneskju upp í hjólbörur hefur ekki enn verið gert að tilskipun hjá ESB. Ég er hræddur um að þið hafið farið á sveig við geigvænlegt bjúrókrat ESB... svo að ég tali nú ekki um bjúrókrat Baggalútíu! ‹Hrökklast aftur á bak og hrasar við›

Rasspabbi - Atvinnulaus fyllibytta - Sæmdur heiðursorðu bagglútíska heimsveldisins af Hakuchi - Bruggari í tómstundum
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Mikill Hákon 21/8/05 13:48

‹hellir saman læknaspíra og stroh 80› ‹hristir vel› Jæja! Adios amigos! ‹skellir þessu í sig og sofnar um leið›

Mikill Hákon • Keisari Baggalútíu • Eigandi sálar Vambans • Sendiherra Baggalútíu í Afríku
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
hundinginn 21/8/05 13:52

Hefði þessi annars ágæti þráður ekki átt að sullast inn á "Efst á baugi"?
Hver passar uppá þetta eiginlega?

Eigandi Kaffi Blúts. • Lifi sannleikurinn!
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Hexia de Trix 21/8/05 18:04

Rasspabbi mælti:

Að rusla manneskju upp í hjólbörur hefur ekki enn verið gert að tilskipun hjá ESB. Ég er hræddur um að þið hafið farið á sveig við geigvænlegt bjúrókrat ESB... svo að ég tali nú ekki um bjúrókrat Baggalútíu! ‹Hrökklast aftur á bak og hrasar við›

Víst er það satt og rétt Rasspabbi minn kær.
Það á þó aðeins við um manneskjur aðrar en mann sjálfan. Þar sem við Ívar erum löglega gift ‹Sveiflar hjúskaparvottorðinu› og gefin saman með einhverjum orðum um að „tvö skulu nú vera orðin eitt“ skilst mér á smáaletrinu að ég hafi fullt leyfi til að rusla Ívari mínum upp í hjólbörur, nú eða hvert þangað sem hugur minn fýsir þá og þá stundina.

Alma Mater Baggalútíu • Kakómálaráðherra • Yfirbókavörður Baggalútíu • Forstöðumaður Bóka- og skjalasafns Baggalútíu
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Vladimir Fuckov 21/8/05 23:31

En hafið þjer pappíra upp á að þjer megið eiga hjólbörur ?

Forseti Baggalútíu & kóbalt- & hergagnaframleiðsluráðherra o.fl. Baggalútíu • Staðfestur erkilaumupúki • Óvinur óvina ríkisins #1 • Virðulegasti Gestapóinn, krúttleysingi og EIGI krútt • Óafvitandi aðili ósamhverfra vensla
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Hexia de Trix 22/8/05 00:09

‹Lítur grunsemdaraugum á Vlad›

Hver sagði eitthvað um það í hvers eigu hjólböruskrattinn er?

Alma Mater Baggalútíu • Kakómálaráðherra • Yfirbókavörður Baggalútíu • Forstöðumaður Bóka- og skjalasafns Baggalútíu
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Vladimir Fuckov 22/8/05 00:20

Ehh... uhhh... sko, þjer þurfið líka að hafa pappíra upp á að þjer megið nota hjólbörur þar eð um hættulegt 'farartæki' getur verið að ræða sje það eigi notað eins og til er ætlast.

Forseti Baggalútíu & kóbalt- & hergagnaframleiðsluráðherra o.fl. Baggalútíu • Staðfestur erkilaumupúki • Óvinur óvina ríkisins #1 • Virðulegasti Gestapóinn, krúttleysingi og EIGI krútt • Óafvitandi aðili ósamhverfra vensla
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Hexia de Trix 22/8/05 00:23

‹Fer í fýlu› Viltu kannski prófa hvernig er að fá hjólbörur í hausinn, ha?

‹Áttar sig á að ekki er gáfulegt að lenda á listanum ógurlega yfir óvini ríkisins›

Eh, ég meina sko... má ekki bjóða þér Kóbaltkakó?

Alma Mater Baggalútíu • Kakómálaráðherra • Yfirbókavörður Baggalútíu • Forstöðumaður Bóka- og skjalasafns Baggalútíu
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Vladimir Fuckov 22/8/05 00:25

‹Ljómar upp› Jú, það hljómar vel ‹Sýpur á fagurbláu kakói og gleymir öllum pappírum og eyðublöðum›

Forseti Baggalútíu & kóbalt- & hergagnaframleiðsluráðherra o.fl. Baggalútíu • Staðfestur erkilaumupúki • Óvinur óvina ríkisins #1 • Virðulegasti Gestapóinn, krúttleysingi og EIGI krútt • Óafvitandi aðili ósamhverfra vensla
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Hexia de Trix 22/8/05 00:27

‹Bruggar meira Kóbaltkakó til að halda forsetanum ánægðum›

Alma Mater Baggalútíu • Kakómálaráðherra • Yfirbókavörður Baggalútíu • Forstöðumaður Bóka- og skjalasafns Baggalútíu
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Vamban 22/8/05 11:30

‹Fær sér Admiral og flugvélabensínskokteil með dass af Últrakóbalt›

Reykingar eru bannaðar nálægt mér næstu tvo tímana takk!

Vimbill Vamban - Landbúnaðarráðherra. Hirðstjóri og yfirsmakkari. Fjármálastjóri Hreintrúarflokksins.
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Vladimir Fuckov 22/8/05 11:54

Það var nú verra. Vjer ætluðum að fara að prófa nýja eldflaugahreyfla. Líklega er þá best að flytja tilraunasvæðið til Portúgals, þar tæki enginn eftir þessháttar tilraunastarfsemi.

Forseti Baggalútíu & kóbalt- & hergagnaframleiðsluráðherra o.fl. Baggalútíu • Staðfestur erkilaumupúki • Óvinur óvina ríkisins #1 • Virðulegasti Gestapóinn, krúttleysingi og EIGI krútt • Óafvitandi aðili ósamhverfra vensla
LOKAÐ
     1, 2  
» Gestapó   » Efst á baugi   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: