Coca Cola er verra en Pepsi Cola.
Viskí.
Er talið hafa verið bruggað fyrst af Írum sem svo kenndu Skotum listina og hafa þeir síðan verið mun betri viskíbruggarar.
Úralfjöll
Ca. 2500 km fjallgarður sem nær frá Novaya Zemlya í norðri til steppum Kazakstan í suðri. Fæst eru fjöllin mjög há, hæsta fjallið er innan við 2.000 m.y.s.
Um þau má fræðast hér:
http://en.wikipedia.org/wiki/Ural_Mountains
dálkur
Orð sem er notað um eggvopn og í prentmiðlum.
Mongólíti.
Rosalega "fyndið" gælunafn unglinga yfir aðra unglinga þessa dagana.
Kettir
Orðið köttur, sem og skyld orð í mörgum Indó-Evrópskum tungumálum, er upphaflega komið af orðinu utchat, en það voru frjósemishálsmen sem ungar konur báru gjarnan í Forn-Egyptalandi. Á þeim mátti sjá myndir af kettlingum.
New Orleans
Berbrjóstahöfuðborg Bandaríkjanna.
Grænn hlunkur.
Heitir á frummálinu "The Incredible Hulk", stundum þýtt á ylhýra "jötuninn ógurlegi". Hugarsmíð hins frjóa og frábæra rithöfundar Stan Lee (raunverulegt nafn: Stanley Martin Lieber).
Hallormsstaðaskógur
Eins og nafnið gefur til kynna, er höfuðverkur verkur í höfði. Hann getur átt sér margskonar orsakir, en meðal þeirra algengustu er vöðvabólga í hálsi.
Sardínur
Litlir fiskar sem búa í niðursuðudósum.
Breiðnefur
Sönnun fyrir tilvist og húmor Guðs...eða þróunarlegt stórslys.
Banjó
Hljóðfærið banjó kemur fyrir meðal annars bæði í myndinni Deliverance og tölvuleiknum The Curse of Monkey Island.
Eldhús
Staður þar sem konan er geymd á daginn, bak við eldavélina.
Kísill
Efni sem mömmur (og álíka þjóðfélagshópar) halda fram að setjist á vaska, baðker o.s.frv. Venjulegt fólk tekur ekki eftir þessu.
Post-it límmiðar
Post-it límmiði er svampategund, sú eina sem lifir góðu lífi ofan sjávar. Svampurinn er óvenju þunnur í laginu en það er líklega út af því að loftið er þynnra en sjórinn. Svampurinn nærist með því að veiða dýr á klístraða himnu á einum enda hans, í klístrinu er jafnframt lítilsháttar sýra sem meltir dýrin (yfirleitt marflær, flugur eða köngulær). Svampurinn er því eitt af fáum dýrum sem hafa meltingarveg að utanverðu. Næringin osmósast síðan inn í þunnan svampinn.
Svamptegundir hafa mátt þjást í árþúsundir út af mannskepnunni sem ætíð virðist finna einhver not fyrir þá. Post-it svampar eru engin undantekning. Á öndverðum sjötta áratugunum fóru mannskepnur að nota hann á skrifstofum út um allan heim, þar sem auðvelt reyndist að skrifa á þá og nota meltingarveginn til að líma upp á vegg.
Stöðumælir.
Stöðumælir er nýtt nafn sem að námsgagnastofnun hefur ákveðið að gefa samræmdu prófunum og jafnvel prófum almennt. Héðan í frá fellur engin á prófum, heldur verður talað um stöðumælasekt, sem á þá við um sektarkennd viðkomandi nemanda.
Undanrenna.
"Sjaldan er á botninum betra, nema úlfur í undanrennu" er einn skemmtilegasti útúrsnúningur á máltæki sem ég hef heyrt.
Útfarastofa