— GESTAPÓ —
Nýtt efni - (gamlir belgir)
» Gestapó   » Efst á baugi
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Glúmur 15/8/05 11:51

Hér á Baggalút og Gestapó hefur borið á nýju og afar skemmtilegu efni eins og t.a.m. baksíðan sem fékk mig til að taka bakfall af hlátri.
Ég vil þó aðvara fólk því vissara er að ganga hægt um gleðinnar dyr, mér var til dæmis miður skemmt þegar ég ákvað að kíkja á hvað hið nýja svæði, „Útför“ hefði að geyma og sá ég samstundis eftir því að hafa fetað það glapræðisspor.

Gagnvarpið er komið til að vera
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Hakuchi 15/8/05 11:57

Já Glúmur, minningargreinasíðurnar hafa alltaf verið banvænar.

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Dr. Schwitz 15/8/05 14:40

Síða 6 var hneykslanleg. ‹Skellir hurðum og stappar niður fótum.›

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Vladimir Fuckov 15/8/05 14:57

Útförin fór líka mjög í taugarnar á oss er vjer snerum aftur því er vjer snerum síðan aftur aftur að lokinni útför er óvart átti sjer stað var allt búið að merkjast sem lesið. Er frá leið gerðum vjer oss þó grein fyrir að e.t.v. var það eigi svo slæmt. Hefði þetta heitið skiljanlegra nafni værum vjer enn að lesa innlegg er bættust við í fjarveru vorri og ei farnir að sofa. Í staðinn er staða mála sú að vjer náðum góðum svefni sl. nótt.

Forseti Baggalútíu & kóbalt- & hergagnaframleiðsluráðherra o.fl. Baggalútíu • Staðfestur erkilaumupúki • Óvinur óvina ríkisins #1 • Virðulegasti Gestapóinn, krúttleysingi og EIGI krútt • Óafvitandi aðili ósamhverfra vensla
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Vamban 15/8/05 14:58

Mér gengur ill að finna þessi fimm atriði sem ekki eru eins. Vonandi verður þetta ekki svona strembið í framtíðinni.

Ætli það séu verðlaun í boði?

Vimbill Vamban - Landbúnaðarráðherra. Hirðstjóri og yfirsmakkari. Fjármálastjóri Hreintrúarflokksins.
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Hakuchi 15/8/05 16:42

Ég er líka ánægður með að Samhverfurnar eru loksins komnar á sæmilega áberandi stað. Þó þætti mér vænt um að sjá merkingar við tegund samhverfanna í skírari litum.

LOKAÐ
» Gestapó   » Efst á baugi   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: