Skabbi nokkur Skrumari kom að máli við okkur og bað um nýja umræðu. Hér er hún... Styður báðum höndum á mjaðmir, hallar sér aftur og hlær eins djúpum hlátri og unnt er
Þetta er einstaklega málefnalegt! Hæstvirtir Alþingismenn ættu að taka svona málflutning til sín! Já, skál fyrir því!
Þetta er vítavert!
Ávítir Vamban
Hvenær verður hún gömul?
Ávítar Vambann
Dæmir ákavíti og sýnir öllum gula spjaldið
Hún verður gömul þegar þráðnum verður lokað.
sýnir ákavítinu gula spjaldið og drekkur það svo
mælir þráðinn
Sýnir öllum rauðaspjaldið. Er þetta ekki flott ég keypti þetta á Ebay fyrir 100 dollara.
Er marg ákavíttur og ráfar í burtu
ráfar á ákavítið og burtar það
Ekkert er helvíti, nema Ákavíti sje!
Þessi nýja umræða krefst gengdarlausrar áfengisneyslu. Af þessu sérstaka tilefni býð ég Bagglýtingum í glas. Var að klára að brugga mitt sérstaka eldvatn.
Fólk vill líkja þessu við landa en mér finnst meiri keimur af hvannarótarbrennivíni. Svona eins og afi gamli drakk áður en hann datt ofan í brugg-kerið og drukknaði.
Hugsar um afa sinn heitinn, fljótandi ná í gruggugu áfengi
xT
Prófar nýja Rasspabba-eldvatnið út í kakóið sitt og steindrepst med det samme
Það tilkynnist hjer með opinberlega að þetta nýja eldvatn er skv. prófunum vorum prýðilegt eldflaugaeldsneyti. Pöntum vjer því hjer með formlega milljón tonn af því og óskum afhendingar sem fyrst Ljómar upp yfir því hve þetta eru slæm tíðindi fyrir óvini ríkisins.