Eftir að þið skiptuð úr bleiktum pappír yfir í brúnleitt bókfell gleymdist að uppfæra blekbytturnar, svo að ef maður reynir að skrifa leynileg skilaboð með hvítum stöfum eru þau vel sýnileg með berum augum.
Væri ekki betra að hafa það í sama lit og bókfellið?
Það hefur oft reynst vel að nota sítrónusafa í stað bleks til að koma leynilegum skilaboðum áleiðis.
Ég rak einmitt augun í þetta skemtilega (vanda)mál á dögunum.
Nú má segja að ýmis leynileg skilaboð hafi verið gerð "opinber" því áður þurfti ég að verma skilaboðin yfir kertaloga til að sjá leynileg skilaboð.
Hmm, fyrst hélt ég að hér væri talað undir rós. En nú sé ég að þetta er bara leiðinlegur þráður
Auðvitað erum við að tala undir rós.
Og þú getur sjálfur verið leiðinlegur, addna Hóras Póras.
Hengir rósir í loftið og talar
Hnuss! Ég ulla á þig Steinríkur Beinpíkur!
Ljótt er að skilja útundan og því lofa ég mér að vera með. Ég hef verið með í leikritum og orgíum. Þetta er svipað. Ekki þó leður svipað, bara rétt svipað. Alkunna er að það er ljótt að hvísla í afmælum og þar fær maður oft popp. Æskan var einföld og þessi texti sannar það.
~Postulín er teflon 18. aldarinnar~
Þetta er betra en hvíta blekið því oft var hægt að lesa það hvíta en þetta er alveg ósýnilegt.
Já, einmitt. Það fór eftir því hvernig helvítis litdýptin á skjánum manns var.
En hvað gerist svo þegar skipt verður aftur um útlit á lútnum?
Aha... þetta er nokkuð skemmtilegt.
Úh úh.. má ég vera með?
híhí
Ég má nú ekki missa af þessu partýi.
Hmm, ætli það megi segja lesbía með þessu bleki?
Djöfull ertu snöggur að þessu!