Hvernig strokar maður út eitt af þeim félagsritum sem maður hefur skráð sem uppáhalds?
...og annað tengt, væri ekki ráð að maður geti ráðið sjálfur hvaða félagsrit sem maður hefur skrifað birtist í athvarfi manns... nú er það þannig að 40 nýjustu birtast, en þau eru ekki endilega þau félagsrit sem maður er stoltastur af...
Hvernig strokar maður út eitt af þeim félagsritum sem maður hefur skráð sem uppáhalds?
Þessu skal ég kippa í lið.
...og annað tengt, væri ekki ráð að maður geti ráðið sjálfur hvaða félagsrit sem maður hefur skrifað birtist í athvarfi manns... nú er það þannig að 40 nýjustu birtast, en þau eru ekki endilega þau félagsrit sem maður er stoltastur af...
Sjáum til með þetta. Núverandi kerfi gerir einfaldlega ekki ráð fyrir viðlíka afköstum og hjá þér Skabbi minn.
Þarf ekki sér kerfi fyrir Skabba? Visionary 3000 frá Helmut & Kragh væri tilvalið.
Þetta var nú víst komið, en máske ekki á mjög áberandi stað. Ef þú ferð í athvarfið þitt þá er listi yfir Úrvalsrit neðst til hægri. Þar getur þú potað í x-ið og strokað út.
Ég hef valið um 15-20 úrvalsrit, en einungis eitt félagsrit birtist neðst til hægri og það er ekki endilega það sem ég vil eyða út úr úrvalsritum...
Jahér, þetta virkar nefnilega í báðum hjá mér. Ég þarf að kíkja betur á þetta.
Þetta var það sem mig grunaði. Tölvurnar ráða ekki við afköst heilans eða öfugt. Nú er allt komið í hnút og ekki skáti í augsýn. Fullorðnir karlmenn sem eru skátar hafa margt að sanna, helst fyrir sjálfum sér. Það er nauðsyn að lofa fólki að klæðast þeim klútum sem það helst vill sjálft.
~Tvær skálmar eru ekki öllum nægar~