Anganvísanirnar eru frábær nýbreytni. Hins vegar heyrist mér á sumum að þeir vilji ekki að hver sem er geti séð þær í Athvarfi sínu. Sumir munu lítt stoltir af áhuga sínum á þráðum á borð við Sadó-masókistar allra sveita sameinist, Merki um notkun stólpípna og Ég DÝRKA Brad Pitt!!!.
Mér þykir einmitt til bóta að eftirlæti gesta sé miðlað svo þeir sem óreyndir eru hér um slóðir geti ratað inn á áhugavert efni sem annars félli í dá gleymskunnar.
En máske verður seinna hægt að fela ákveðna anganþræði, sjáum til.
Ég er raunar sammála því. Besta lausnin væri að mínu mati sú að merkja mætti anganvísanir sem persónulegar, en þær væru að jafnaði opinber gögn.
Annars hef ég ekkert að fela.
Roðnar óstjórnlega og borar annarri stórutánni ofan í gólfið
Ég ætla hér með að opna mig og finna nokkra uppáhaldsþræði og anganvísast allsvakalega...
Ég er búinn að vera að leika mér í þessu. Skemmtilegt fyrirbæri, og hafð þú þökk fyrir þetta framtak, Enter, að því gefnu að þú hafir verið hér að baki. Mér finnst hins vegar að anganvísanir eigi að vera í stafrófsröð - það er hreinlegra þannig. Reyndar raða ég nánast öllu í stafrófsröð, þar með talið rykinu á tölvuskjánum mínum, þannig að ég er kannski ekki besti maðurinn til að meta svona lagað.
Væri það mikið mál fyrir órangútana að útbúa það svo að þegar maður er að lesa þráð geti maður séð nöfn þeirra er merkt hafa þráðinn sem anganþráð ?
-
Ég allsvakalega sammála Þarfa með stafrófsröðina. Þetta er búið að pirra mig frá upphafi.
Reyndar raða ég nánast öllu í stafrófsröð, þar með talið rykinu á tölvuskjánum mínum
Hvað heita rykkornin á tölvuskjá yðar ?