Smá smámunasemi hér.
Mætti vísanin "HEIMASVÆÐI" sem er stjórnboðsmegin við einkennismyndn notanda ekki heita "Athvarf yðar" líkt og vísan á sama stað, staðset fyrir neðan anganvísanir...
Að voru mati mun huggulegra orðalag.
Sammála, ég vildi bara sýna ykkur fyrst hvað orðið Heimasvæði tottar heiftarlega.
Fyrst ég er byrjaður... hvað með að setja eitthvað í stað hin hvimleiða orðs "SKILABOÐ". Allt of nútímalegt. Sting upp á einhverju eins og Landspóstur eða eitthvað annað gamaldags. Ég hefði a.m.k. gaman að því.
Eru Sendibrjef ekki móðins nú til dags?
Það er ekki síðri tillaga
Oh strákar, þið eruð svo miklar dúllur.
Hér með tilkynni ég opnberlega að ég er ánægður með nafngiftina "Póststöð" í þessu samhengi.
En getur einhver sagt mér hvernig orðið "Niðurskipan" er hugsað í þessu samhengi?
"AFTENGJAST" er all nýmóðins orð.... hvað með "Í kjétheima" eða bara "Brotthvarf" eða hvað eina í þeim dúr.
Bendi þó á að hér er einungis um smámunasemi að ræða hjá mér, ekkert sem skiptir máli. Svona er ég bara ef mig skildi kalla.
Mér finnst þetta flott útlit, en fyrst menn eru hér með smámunasemi vil ég leggja mitt af mörkum. AFTENGJAST gæti verið NEYÐARÚTGANGUR eða AFNETJAST sbr. ánetjaður.
...eða útspýtast, þurrkví, afvötnun, Vogur, skjálfti...
Aftengjast=Raunheimar
Niðurskipan=Vegabréf
Það er ekki að spyrja að því... Enter er komin með það... ÚTFÖR... nú ætla ég að útfarast... sjáumst síðar í dag...
Niðurskipan=Vegabréf
Þar sem niðurskipan er einskonar skráning á "persónulegum" högum er spurning hvort hagstofa sé of móðins.
Annars langaði mig meira að vita hvernig þetta orð er hugsað þarna, alls ekki slæmt orð.
Hvað með Kirkjubók? Í kirkjubækur voru skráðar ýmsar persónulegar upplýsingar...
Útför Enters var Glæsileg.
Spurning hvort breyta megi öðrum skráningum á svipaðan hátt.
Innskráning= Heimför
Nýskráning= Himnaför
Niðurskipan er einfaldlega samheiti við uppsetningu, fyrirkomulag.
Gefur frá sér vellíðunarstunu
Aftengjast=Raunheimar
Niðurskipan=Vegabréf
Uppgjöf
uppgjöf
hvað sagði Jógvaninn ekki einu sinni:
"Ég bara tími ikki at liva longur"