Verzlunarmannahelgin var róleg á knattborðsstofum borgarinnar, eins og við var að búast. Spesi leit við á laugardaginn. Við settum kántrídiskinn á, og hljóðkerfið í botn. Mikið gaman..!..
.
Fimmtudagur 04-08-2005.
Hóras og Furðuveran litu við í heitt kaffi og Ískalt Malt, tekið var lítið en einstaklega spennandi og skemmtilegt knattborðsmót..!..
.
Seinna um kvöldið leit Amma Kúreki við og fundað var um "BAGGALÚTILEGUNA" sem á að vera þar næstu helgi. Þá leit Tinni við, var bara kátur en stoppaði frekar stutt.
Já, þakka yður fyrir síðast. Þetta var alveg prýðilegt.
Vil hvetja gesti til að leggja leið sína um knattborðsstofuna sem mest þeir mega.
Verður nokkuð mikið að gera hjá þér í kvöld Heiðglyrnir?
Það ætlar Riddarinn svo sannanlega að vona.
Ég líka, fyrir þína hönd, en ég kem allavega og vona að eitt pool borð verði laust fyrir æfingar.
Það verður örugglega allt í góðu lagi Furða mín. Maltið er í klakavélinni.
Verður fundur háttvirti riddari eða hvað er að frétta úr Latabæ ? hehehe
Auðvitað verður haldin fundur. Koma svo.
Er mér boðið?
Auðvitað kæra ísdrotting, við ættum ekki annað eftir en að skilja þig eftir útundan.
Já endilega að fá sjálfa Drottninguna á svæðið til skrafs og ráða gerða
það hefur okkur upp úr meðalmennskuni
kannski þá loksins að maður taki hendur úr vösum og hætti þessu vasa pooli
Dordingull og Amma Kúreki er ekki fundur einhversstaðar sem að þið eruð að gleyma.
Er bara á flandri út um holt og móa í leiðindarveðri hvar sem ég fer.
Ég fór í útilegu þarna í júní muniði (ekki man ég hvaða mánaðardag það var...) og ég var að koma heim bara í gærkveldi.
Þetta var ekki nema fjögurra holla úthald núna. Ég náði að slá út fimm vikna tveggja hollinu í fyrra meiraaðsegja.
En ég er að sjálfsögðu alltaf til í góða útilegu, bara að nefna það.
Ég væri ekki komin heim núna nema af því að ég þurfti að endurnýja lamirnar í tjaldvagninum!
Allir í Baggalútilegu. 12 til 14 ágúst, koma svo.
Má ég koma með?
Setur upp sparisvipinn