Gjört hefur verið heyrinkunnugt að breytingar verði gerðar á samstæðuni Og vodafone með þeim hætt að Og vodafone sem var móðurfélag samstæðunar og 365 fjölmiðlar eru orðin dótturfélög nýs móðurfélags, Dagsbrúnar hf. Þannig er Dagsbrún hf. í raun nýtt nafn samstæðunar og skráð nafn á markaði.
Þar sem ég hef haft með höndum starf í samstæðuni, er ég þá á dagsbrúnartaxta?
Starir þegjandi út í loftið
Má þetta? Ég meina, hér einu sinni var verkamannafélagið Dagsbrún til og það eru enn afgangar af því í Eflingu. Er þá löglegt að stela svona rótgrónu nafni?
Jahh... það er til gistiheimili sem heitir dagsbrún..... vei ei hve aldrað það er....
Strunsar út af sviðinu og skellir á eftir sér
Já, það má víst. Sérstaklega ef félögin eru ekki í skyldum rekstri.
Dagsbrún er fallegt nafn. Mér finnst samt hálf lúalegt að þetta asnalega fyrirtæki sem virðist vera stjórnað af óvitum sem geta ómögulega gert upp hug sinn um nokkurn skapaðan hlut (sbr. endalausar nafnabreytingar og skipulagsbreytingar á þriggja mánaða fresti) skuli velja þetta nafn, með þessa sögu á bak við sig.
Vindhani, Amlóði, Ringulreið, Vitleysa eða eitthvað í þeim dúr, hefði verið mun hentugra nafn fyrir þetta fyrirtæki.
Það er nú ekki oft sem þetta gerist Hakuchi en nú er ég samála þér. Þessir menn er með mestu opinberu hálfvitum landsins.
Það er engin Dagsbrún án Gvendar jaka. Þannig að nú er þrennt til ráða: a) grafa upp lík hins eina sanna Gvendar (og það gæti nú reynst þungt í honum), b) sækja stóran ísklump úr einhverjum af jökulum landsins og skýra hann Gvend, c) hætta við nafngiftina og skýra þetta frekar 666 media group.
Æsifréttamennska eða dauði!

Eða bara að skella Gvendi skrítna í þetta. Hann ætti að geta stjórnað Dagsbrún eins og hann stjórnar Gestapó á bak við tjöldin.
Það er engin Dagsbrún án Gvendar jaka. Þannig að nú er þrennt til ráða: a) grafa upp lík hins eina sanna Gvendar (og það gæti nú reynst þungt í honum), b) sækja stóran ísklump úr einhverjum af jökulum landsins og skýra hann Gvend, c) hætta við nafngiftina og skýra þetta frekar 666 media group.
Það er nú alltaf hægt að sækja Gvend Jaka upp í Hallgrímskirkju. Hann nefnilega sat fyrir sem stóra styttan af Kristi sem er þar inni.
Ætli nú þyngist ekki dagsbrúnin á sumum?
Ég sá Gvend Jaka í sjónvarpinu í gær, er hann látinn?
Ætli hann sé bara ekki vant við látinn...
Meðan að þessir fjölmiðlagalgopar nefna sig ekki Baggalút og villa þannig stórlega á sér heimildir um vandaðan og sannan fréttaflutning þá skipti ég mér ekki af þeim enda kaupi ég bráðum minna frá þeim en nokkurntíman áður. Það kemur þeirra stefnu ekkert við, bara mín stefna er önnur eins og staðan er.Sparar aurinn og kastar krónunni