Það styttist óðum í næsta sumarfrí.
Síðasti maður slökkvi ljósið.
Þetta nýja útlit Baggalúts er svolítið væld, en samt þannig að snyrtimennskan er í fyrirrúmi....
Það er mjög gaman að rekast á ykkur öll hérna og bíð ég ykkur velkominn aftur á þessu síð sumri.
Það er ánægjulegt að sjá ykkur öll, já. Ég er líka feginn að fá loksins skeggjuðu myndina af mér, það vantaði hana.
Annars er þetta nýja útlit svona Wag-the-Dog dæmi. Til að breiða yfir annan skandal, þegar Enter, Austmann og ÁJ lömdu heila fermingaveislu í klessu á Þjóðhátiðinni, af því enginn þar hafði lært á gítar.
Sárnar
En..enn..af hverju var mér ekki boðið?
Berst við tárin í augunum. Stingur höndum í vasa, og gengur burt niðurlútur. Tautar fyrir munni sér:
Ég hefði líka viljað fá að berja fermingarbörn.
Ahh, gott að komast heim á nýjan leik..
Ég var að hjálpa Enter um daginn. Veit ekki hvort þetta gengur alveg nógu vel hjá honum, hann var að kvarta voðalega mikið, karlinn. Nei, hakuchi, Enter er skíthræddur við þig. Kallar þig steratröllið með stereógræjurnar. Eitthvað svoleiðis. Austmann er svona gæi sem ég er búinn að kannast við það lengi að hann er næstum fjölskylda. Kann að rífa hressilega kjaft en ekki bara að kinka kolli. En ég króa hann út í horn hvenær sem er.
Voðalega er allt eitthvað................ ÖÐRUVÍSI hér.
Hrökklast aftur á bak og hrasar við
Heil og sæl og ánægjulegt að sjá ykkur aftur.
Brosir eins og fífl
kallarEnter!
Það er eitthvað að tilvitnunum hjá mér (og kannski öðrum). Gætirðu nokkuð lagað það fyrir mig?
Stolt siglir fleyið mitt stórsjónum á..
Það styttist óðum í næsta sumarfrí.
Síðasti maður slökkvi ljósið.
Miðað við myndina er eins og einhver hafi þegar slökkt ljósið hjá þér...
Efalítið.
Fær sér sæti við legubekkinn og bendir Ég Sjálfur að leggjast.
Hvurnig lýsir vandamálið sér?