Verður þetta sem sagt útlit vefsins fyrir þessa vertíð? Alltaf eitthvað sem þarf að venjast... Starir þegjandi út í loftið
Já, og svo er auðvitað gaman að vera kominn aftur etc. etc.
Það er aðeins eitt sem truflar mig við þetta annars skemtilega útlit. Ég hef það alltaf á tilfinninguni að þetta sé baksíða. Persónulega tel ég að jaðarinn sem nú er hægrameginn ætti að vera vinstrameginn....
Snúðu bara tölvuskjánum á hvolf, þá ætti þetta að lagast.
Komiði hjartanlega sæl vinir mínir. Ljómar upp
Mikið skelfilega er ég ánægður með breytingarnar. Margt þarft sem hér hefur verið gert.
Þessi þráður er líka ansi áhugaverður, best að setja hann í safnið. Hlær púkahlátri
Hér er margmennt og góðmennt. Vertu velkomið aftur Gestapó og allir þínir gestir.
Mikið er ánægjulegt að snúa aftur í svo góðan félagsskap. Útlitið lofar fjandi góðu. Ég bið ritstjórn um að færa iðanaðarmönnunum sem stóðu að þessum endurinnréttingum kærar þakkir fyrir vel unnin störf.
Vei vei.
Gestapó snýr aftur!
Er búið að láta fjölmiðla viita?
Böstar inní heljarmikilli glimmersprengingu. Leðurdvergar fljúga í allar áttir auk þess sem sterkan angan af rótsterkum Admiral fyllir öll vit. Hetjan sviptir sig klæðum og kallar undurfagri tenórröddu yfir mannskapinn:
SKÁL!
Vamban!
Gamli refur! Hvar hefur þú haldið þig?
Slær hressilega í bak Vambans svo hann þeytist áfram og endar við barborðið
Nú á barnum. Hvar hefur þú haldið þig eiginlega?
Ég bar að drepa mann og annan í útlegðinni. Maður verður að halda sér í formi.
Heggur hárið af leðurdverg
Þessi fjarvera var skelfileg. Það hefði verið frábært ef Skabbi eða e-r annar fíkill hefði skapað sumargestapó og kallað það 'kveðist á' - hann hefði jafnvel getað notað armbell.com - en þessar hugmyndir verða víst að bíða fram að næstu lokun.
Klórar sér í höfðinu og finnur eitthvað grænt
Þessi fjarvera var skelfileg. Það hefði verið frábært ef Skabbi eða e-r annar fíkill hefði skapað sumargestapó og kallað það 'kveðist á' - hann hefði jafnvel getað notað armbell.com - en þessar hugmyndir verða víst að bíða fram að næstu lokun.
Djöfull er ég sammála þér Smábaggi. Húrra!
Kæru vinir...
Í tilefni þessa dags er ég hingað kominn til þess að bera framförunum vitni...andvarp.. ...Best að byrja aftur
Það er kunnara en frá þurfi að segja, að maður var greinilega ekki fyrstur á þennan vettvang þó svo að maður hafi verið eins og grár köttur hér um síðasta miðnættisbil
Kasegiði? Er allt gúddí?
Þessi fjarvera var skelfileg. Það hefði verið frábært ef Skabbi eða e-r annar fíkill hefði skapað sumargestapó og kallað það 'kveðist á' - hann hefði jafnvel getað notað armbell.com - en þessar hugmyndir verða víst að bíða fram að næstu lokun.
Djöfull er ég sammála þér Smábaggi. Húrra!
Vonum bara að hann klúðri því ekki þá og gleymi að láta um helming Bagglýtinga vita.