Ég er staddur á spjallsvæðinu og augljóst er að spárnar um lokun eru að rætast. Nú get ég ekki séð ný innlegg lengur. Nánari fregnir þegar þær berast.
HEIMSENDIIIIR! Hleypur í hringi og hendir marhnútum í viðstadda
Sér gæsir fljúga afturábak
Ábyggilega vandamál með smákökurnar þínar.
Annars er ég svo lítill tölvubakari að ég veit ekkert hvað ég er að segja.
-
Ansi löng villuboð. Þau hræða mig.
Ef ég vel "Hvað er nýtt?" fæ ég villuboð.
Aha.
Felur sig
Smíðar skilti með "Heimsendir" í stórum rauðum stöfum Iðrist! IIIIIIIÐRIIIST!
Iðrast ekki og syndir í sýrópi
Vjer höfum sjeð þessa villu nokkrum sinnum áður, síðast fyrir örfáum vikum. Þá kom hún fram í tengslum við leit, annaðhvort að öllum innleggjum tiltekinna gesta eða leit skv. skilyrðum. Vjer efumst um að þetta tengist yfirvofandi lokun.
MIg grunar að þessi lokun tengist nauðsynlegu viðhaldi. Vefurinn er greinilega að hruni kominn og þeir þurfa að fylla á kóbaltgeymana í gagnagrunninum.
Ljóst er að hver svo sem villan var, þá hefur hún augljóslega verið lagfærð af hinum eðlu mönnum í ritstjórninni, því vér höfum eigi rekið augu vor í hana.