— GESTAPÓ —
F.Á.U.Á.U.Ú.G.
» Gestapó   » Almennt spjall
     1, 2  
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Glúmur 30/9/03 08:57

Allir þeir sem vilja skrá sig sem félaga í F.Á.U.Á.U.Ú.G. eru vinsamlegast beðnir um að rita á þennan þráð.

Gagnvarpið er komið til að vera
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
hvurslags 30/9/03 09:24

Glúmur mælti:

Allir þeir sem vilja skrá sig sem félaga í F.Á.U.Á.U.Ú.G. eru vinsamlegast beðnir um að rita á þennan þráð.

Félag Áhugalausra Unglinga Á UngmennaÚrhellisGleði?

Yfir kalda sítrónu, einn um nótt ég bauva.
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Skabbi skrumari 30/9/03 10:37

Glúmur mælti:

Allir þeir sem vilja skrá sig sem félaga í F.Á.U.Á.U.Ú.G. eru vinsamlegast beðnir um að rita á þennan þráð.

Farmenn Á Undanhaldi Ásamt Ungum Úldnum Grybbum?

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Vladimir Fuckov 30/9/03 11:16

Félag Áhugamanna Um Áhugamenn Um Últrakóbalt Glúms ?

Vjer kynnum að hafa á þessu áhuga nokkurn ef þarna er eitthvað áhugavert á ferð og einkum þó ef um er að ræða tengsl við K.A.L.Ís

Forseti Baggalútíu & kóbalt- & hergagnaframleiðsluráðherra o.fl. Baggalútíu • Staðfestur erkilaumupúki • Óvinur óvina ríkisins #1 • Virðulegasti Gestapóinn, krúttleysingi og EIGI krútt • Óafvitandi aðili ósamhverfra vensla
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Limbri 30/9/03 11:28

Hefur þú nokkuð á móti því að þeir sem hafa ekki áhuga á að skrá sig, riti á þennan þráð ?

-

Þorpsbúi -
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Glúmur 30/9/03 15:00

Til að fyrirbyggja allan misskilning vil ég taka fram að F.Á.U.Á.U.Ú.G. Stendur fyrir Félag Áhugamanna Um Árás Utan Úr Geimnum. Einnig býð ég nýja félaga velkomna í hópinn.

Gagnvarpið er komið til að vera
 • LOKAР•  Senda skilaboð
Grimmis 30/9/03 15:11

Herra Glúmur,
hefur þú þá hugsað þér að framkvæma sjálfur slíka árás og hvern hefur þú þá hugsað þér að ráðast á?

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Glúmur 30/9/03 15:19

Komdu sæll Grimmis og vertu velkominn í félagið.
Fram til þessa hefur starfsemi félagsins að mestu snúist um yfirvofandi árás hinna ýmsu geimvera á jörðina.
Þó er hitt líka prýðileg hugmynd að fjalla hér um áform ákafra baggalúta sem hafa hug á að nota kóbalt knúnar geimflaugar Geimbrasksstofnunarinnar til að ráðast á Grænland.

Gagnvarpið er komið til að vera
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Hakuchi 30/9/03 17:37

Þetta er góð hugmynd Glúmur. Sjálfur hef ég verið að dútla mér einn í mínu horni að búa til varnarvirki í garðinum mínum, til að verjast innrásum geimvera. Nú sé ég að ég er ekki einn um að vilja vera reiðubúinn að verjast geimverum og er það nokkur léttir.

Ekki það að ég óttist að þurfa að verjast þessum ræflum einn míns liðs, geimverurnar eiga ekki sjens í kvarkatætarann minn, hvað þá víddaraskarann.

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Glúmur 1/10/03 09:00

Víddaraskari er skaðræðisgripur Hakuchi, mikið er ég feginn að við höfum yfir slíku tæki að ráða. Passaðu þig bara þegar þú handleikur hann, við viljum ekki þurfa að glíma við svarthol á stangli, þau geta verið ill viðureignar.
Fréttir af vígbúnaði þínu eru sérlega ánægjulegar í ljósi þess að nýjar athuganir benda til þess að leynileg árás sé þegar í gangi, að risastór geimveruskip séu nú þegar lent á jörðinni og bíði einungis frekari fyrirmæla um að leggja undir sig jörðina. Sjáið frekar á þessum þræði hér.

http://www.baggalutur.is/viewtopic.php?t=492

Gagnvarpið er komið til að vera
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Vladimir Fuckov 1/10/03 20:23

Verkefni þetta er verðugt mjög og höfum vjer að sjálfsögðu áhuga. Í stað þess að huga eingöngu að vörnum væri gaman ef það tækist svo vel upp með uppbyggingu á leyniþjónustu og her og við byggingu geimskipa að vjer gætum gert árás á einhver verðug fórnarlömb í stað þess að pakka eingöngu í vörn. Vjer erum nú þegar komnir með megnið af þeim búnaði er vjer nýlega auglýstum eftir, að undanskildum einum gerfihnetti, tveimur Geiger-teljurum og tveimur ómönnuðum njósnaflugvjelum.

Að lokum viljum vjer nota tækifærið og vara Hakuchi við kvarkatætaranum þar eð ógætileg notkun umrædds tækist getur haft þær miður heppilegu hliðarverkanir að alheimurinn þurrkist út. Vjer höfum að vísu eigi beina persónulega reynslu af slíku en sýna má fram á það á fræðilegan hátt.

Forseti Baggalútíu & kóbalt- & hergagnaframleiðsluráðherra o.fl. Baggalútíu • Staðfestur erkilaumupúki • Óvinur óvina ríkisins #1 • Virðulegasti Gestapóinn, krúttleysingi og EIGI krútt • Óafvitandi aðili ósamhverfra vensla
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Limbri 1/10/03 22:44

Iss, allt þetta vopnatal svæfir nú bara menn eins og mig. Nei, látið ekki glepjast af glansi stríðstóla. Sannleikurinn sigrar alltaf á endanum. Nægilegt er að sannfæra innrásarlið um yfirburði Baggalúts og þarmeð er hættan úr sögunni. Hver sá sem sér hámenninguna sem skapaðist með tilkomu Baggalúts gæti ekki mögulega ímyndað sér að hann gæti sigrað og þarmeð yrði hann eingöngu undirlægja okkar.

En ef innrásarliðið talar bara færeysku þá erum við í vondum málum því það skilur enginn það helvíti.

-

Þorpsbúi -
 • LOKAР•  Senda skilaboð
Dusilmenni 2/10/03 00:57

Ég vil hér með koma mér í raðir félags yðar og benda yður á að ég er tilbúinn að fórna lífi mínu og fjármunum fyrir málstaðinn !
En ekki er möguleika að ég geti fengið ábyrgðarstöðu í þessu félagi yðar ??
Vanur gjaldkeri og þjónustulyndur mjög.
Í von um góðar undirtektir,
Dusilmennið.

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Glúmur 2/10/03 08:46

Ég tilnefni hér með Dusilmennið sem fjármálastjóra F.Á.U.Á.U.Ú.G. að því gefnu að einhver stiðji tilnefninguna þá getur Dusilmennið hafið störf sín á því að safna í digra sjóði á hvern þann hátt sem hann treystir sér til, enda beri hann fulla ábyrgð á gjörðum sínum og F.Á.U.Á.U.Ú.G. fríar sig allri ábyrgð á hverskyns ólöglegu, ósiðlegu eða óhuxandi athæf sem Dusilmennið kann að stunda til að afla fjármuna í ótæpilegu magni fyrir félagið.
‹Hrökklast aftur á bak og hrasar við þegar hann sér hversu gríðarlega langa setningu hann hefur ritað›

Gagnvarpið er komið til að vera
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Dr Zoidberg 2/10/03 09:14

Glúmur mælti:

Allir þeir sem vilja skrá sig sem félaga í F.Á.U.Á.U.Ú.G. eru vinsamlegast beðnir um að rita á þennan þráð.

Má ég vera með?

Dr. Zoidberg heilbrigðisráðherrann sem er hættur að skrifa með uppsilóni
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Glúmur 2/10/03 09:39

sæll Zoidberg, og vertu velkominn í sívaxandi hóp félaga í F.Á.U.Á.U.Ú.G.
Félagar á þessari stundu eru auk mín, hvurslags, Skabbi skrumari, Vladimir Fuckov, Limbri, Grimmis, Hakuchi, Dusilmenni fjármálastjóri og þér Dr Zoidberg. Einnig er einn heiðursmeðlimur í félaginu, en það er leynifélaginn sem kýs að kalla sig Mill.

Gagnvarpið er komið til að vera
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Fári Egilsson 2/10/03 10:48

Heyrðu mig langar nú eiginlega bara líka að vera memm!!

 • LOKAР•  Senda skilaboð
Tarandus 3/10/03 00:35

Hver vill ekki vera með í ´"Félagi áhugamanna um áfengi, undirmálsmenn, úrgang og gaddvír?

Er þetta annars álgaddavír?

LOKAÐ
     1, 2  
» Gestapó   » Almennt spjall   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: