Já, hann tók ekkert sérstaklega vel í það.Rjettir herra Z rjettinnGjörðu svo vel, þú átt rjettinn.
Jamm; spurt er um orðatiltæki:
Spyrjandi er á gangi, & heldur á poka með einhverju dóti. Sumt á hann sjálfur, en sumt er í eigu kunningja
Spyrjandi missir pokann, & innihaldið fer á víð & dreif
Spyrjandi hirðir upp allt það sem tilheyrir honum sjálfum, en skilur hitt eftir, & heldur áfram sína leið
Neyðin kennir naktri konu að spinna? Nei, samt líklega ekki.
Ég þykist vita að hér sé spurt um kviðling kenndan við Egil frænda minn Skalla-Grímsson, svohljóðandi:
Byrði ne berat
brautu á
aðra en mína ef missi.
Því annarra eigur
eigi ber
ef þær í for falla.
Glottir eins og fífl
Skemmtilig þykir mér innlögn Gunnþórs, þótt tæpast rími hún algerliga við það sem lagt var upp meður...
Lausnin sú hin rétta er sumsé eigi fram komin.
En svona grínlaust, þá er spurt um að láta sitt ekki eftir liggja.
Það er að sjálfsögðu hundraðprósent hárrétt. Taktu það burt, Günther !
Spyrjandi býr sig undir að spyrja um orðtak.
Ræskir sig.
Spyrjandi læðist með sprautu aftan að Adolfi Hitleri, á meðan sá Adolf heldur mikla og innspíreraða ræðu í Nürnberg, og stingur spyrjandi hann þá svo lítið beri á með téðri sprautu. Dregur spyrjandi þessu næst allnokkuð af blóðvökva foringjans í vökvahólf hinnar sömu sprautu. Að þessu loknu gengur spyrjandi sakleysislega í burtu, blístrandi lítinn lagstúf um júða og sígauna, og voðaverk þeirra, framhjá öryggissveitum fyrrnefnds foringja. Þá finnur spyrjandi vænlegt fórnarlamb; barn seljandi eldspýtur á götu. Þá rekur spyrjandi þráttnefnda sprautu í barnið og tæmir hana.
Og getiði nú.
Göbbels
Goebbels (umlaut á o-i er að öllu jöfnu ekki ritað í eiginnöfnum), er, eftir því sem ég best veit, ekki orðtak sem unnið hefur sér þegnrétt í íslenzkri tungu. Því miður.
Að dreifa Dollanum.
Hah! Þóekkí. Gettu enn.
Klórar sér í höfðinu
Innspýting í atvinnulífið frá yfirvöldum...
Eða eitthvað svoleiðis
Mikið eruð þið dugleg við uppfinningar orðtaka, en það stoðar ei, því spurt er um alþekkta röðun orða í setningu. Rýnið gegnum reykinn!
Gefa betlara illvirkjablóð? Ég hef reyndar aldrei heyrt eða lesið það orðtak svo þetta er trúlega rangt svar.