— GESTAPÓ —
Látbragðsleikur B. Ewing
» Gestapó   » Sögur, gátur, leikir og dægradvöl
        1, 2, 3 ... 22, 23, 24, 25  
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Wayne Gretzky 10/9/08 17:08

Já, hann tók ekkert sérstaklega vel í það.‹Rjettir herra Z rjettinn›Gjörðu svo vel, þú átt rjettinn.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst

Jamm; spurt er um orðatiltæki:

‹Spyrjandi er á gangi, & heldur á poka með einhverju dóti. Sumt á hann sjálfur, en sumt er í eigu kunningja›
‹Spyrjandi missir pokann, & innihaldið fer á víð & dreif›
‹Spyrjandi hirðir upp allt það sem tilheyrir honum sjálfum, en skilur hitt eftir, & heldur áfram sína leið›

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Wayne Gretzky 10/9/08 20:59

Neyðin kennir naktri konu að spinna? Nei, samt líklega ekki.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst

Onei, því fer fjarri.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Wayne Gretzky 10/9/08 21:16

Skara eld að sinni köku

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Günther Zimmermann 10/9/08 21:17

Ég þykist vita að hér sé spurt um kviðling kenndan við Egil frænda minn Skalla-Grímsson, svohljóðandi:

Byrði ne berat
brautu á
aðra en mína ef missi.
Því annarra eigur
eigi ber
ef þær í for falla.

‹Glottir eins og fífl›

Antiqvarius Imperii BACCALVTII - Vörzlumaður Fjársjóðskammers forsetaembættisins.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst

Skemmtilig þykir mér innlögn Gunnþórs, þótt tæpast rími hún algerliga við það sem lagt var upp meður...
Lausnin sú hin rétta er sumsé eigi fram komin.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Günther Zimmermann 10/9/08 21:46

En svona grínlaust, þá er spurt um að láta sitt ekki eftir liggja.

Antiqvarius Imperii BACCALVTII - Vörzlumaður Fjársjóðskammers forsetaembættisins.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst

Það er að sjálfsögðu hundraðprósent hárrétt. Taktu það burt, Günther !

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Günther Zimmermann 10/9/08 22:07

‹Spyrjandi býr sig undir að spyrja um orðtak.

Ræskir sig.

Spyrjandi læðist með sprautu aftan að Adolfi Hitleri, á meðan sá Adolf heldur mikla og innspíreraða ræðu í Nürnberg, og stingur spyrjandi hann þá svo lítið beri á með téðri sprautu. Dregur spyrjandi þessu næst allnokkuð af blóðvökva foringjans í vökvahólf hinnar sömu sprautu. Að þessu loknu gengur spyrjandi sakleysislega í burtu, blístrandi lítinn lagstúf um júða og sígauna, og voðaverk þeirra, framhjá öryggissveitum fyrrnefnds foringja. Þá finnur spyrjandi vænlegt fórnarlamb; barn seljandi eldspýtur á götu. Þá rekur spyrjandi þráttnefnda sprautu í barnið og tæmir hana.›

Og getiði nú.

Antiqvarius Imperii BACCALVTII - Vörzlumaður Fjársjóðskammers forsetaembættisins.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Ívar Sívertsen 10/9/08 22:17

Göbbels

Ráðherra drykkjarmála, spillingarmála, ummála og löggiltur oftúlkur, kantor í hverri einustu andskotans messu sem haldin er og spangólari ríkisins. Forseti skásambandsins.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Günther Zimmermann 10/9/08 22:37

Goebbels (umlaut á o-i er að öllu jöfnu ekki ritað í eiginnöfnum), er, eftir því sem ég best veit, ekki orðtak sem unnið hefur sér þegnrétt í íslenzkri tungu. Því miður.

Antiqvarius Imperii BACCALVTII - Vörzlumaður Fjársjóðskammers forsetaembættisins.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Tigra 10/9/08 22:39

Að dreifa Dollanum.

Nornakisa • Dýramálaráðherra • Lyklavörður Pyntingaklefans • Sérlegur Músaveiðari Baggalútíska Konungsdæmisins • Konunglegur listmálari við hirðina • Fólskulegur Ofsækjandi Þarfagreinis
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Günther Zimmermann 10/9/08 22:48

Hah! Þóekkí. Gettu enn.

Antiqvarius Imperii BACCALVTII - Vörzlumaður Fjársjóðskammers forsetaembættisins.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Steinríkur 11/9/08 07:36

‹Klórar sér í höfðinu›
Innspýting í atvinnulífið frá yfirvöldum...
Eða eitthvað svoleiðis

Í sjálfskipaðri útlegð frá skerinu um óákveðinn tíma.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Jarmi 11/9/08 08:44

"Sorrý, nú'rtu me' aids."

Jarmi - 110 oktan og helblekaður á því. Dólgur.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Günther Zimmermann 11/9/08 10:42

Mikið eruð þið dugleg við uppfinningar orðtaka, en það stoðar ei, því spurt er um alþekkta röðun orða í setningu. Rýnið gegnum reykinn!

Antiqvarius Imperii BACCALVTII - Vörzlumaður Fjársjóðskammers forsetaembættisins.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Regína 11/9/08 10:52

Gefa betlara illvirkjablóð? Ég hef reyndar aldrei heyrt eða lesið það orðtak svo þetta er trúlega rangt svar.

Drottning Baggalútíu. Varaforseti Baggalútíu. Dulmálssérfræðingur Hlerunarstofnunar. Meykóngur.
        1, 2, 3 ... 22, 23, 24, 25  
» Gestapó   » Sögur, gátur, leikir og dægradvöl   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: