Ég var að velta því fyrir mér hvað það eru margir þræðir á Almennu spjalli um fólk sem er nýtt hér og er að kynna sig.
Mér datt því í hug að hví ekki bara að stofna einn þráð til þessa og líma hann þarna upp. Þá væru þræðirnir á Almennu spjalli almennt spjall og bara einn þráður fyrir fólk að kynna sig til sögunnar.
Hmm? Er þetta ekki bara fín hugmynd?
Mér finnst þetta mjög góð hugmynd. Það er nánast þriðjihver þráður sem fjallar um einhverja notendur að kynna sig.
Frábært! Tækniórangútarnir eiga sannarlega skilið að fá auka hnetu í kveld fyrir nýja svæðið.
Hrökklast aftur á bak og hrasar við
Vjer verðum samt að mótmæla því harðlega að bókstafur hins illa skuli koma fyrir í nafni svæðisins. Þetta er eina svæðið þar sem svo er og leggjum vjer hjer með formlega til að bókstafur þessi verði fjarlægður og aðrir tveir stafir er betur hæfa verði notaðir í staðinn Strunsar út af sviðinu og skellir á eftir sér.
Gægist aftur inn
Jafnframt hefur eigi komið fram hver annast friðargæslu þarna.
Fyrst það ert þú.
Nær í fjaðurstafinn, blekið og tippexið
Ég var annars að hugsa um að láta nýjasta gestinn hverju sinni sjá um friðargæslu þarna.