Kæru Gestapóar. Um daginn rak ég augun í sérkennilegan pistil, sem ég kann ekki alveg að útskýra. Þar sem hér eru margir íslensku- og málsérfræðingar, þá datt mér í hug að spyrjast fyrir um álit ykkar á þessum skrifum. Hér eru nokkrar spurningar til að byrja með:
Hver er þessi Myrðir?
Hvað þýðir fágætyu?
Hvaða tvær athugasemdir hefur Össur?
Við hverju hefur hann þessar tvær athugasemdir?
Hver var tíð Össurar?
Hver er þessi Daví?
Ykkur er að sjálfsögðu frjálst að setja fram spurningar sjálf - þetta er engan veginn tæmandi listi.
Hlær
Hann Össur er ágætur... þetta er sönnun þess að hann er ekki vélmenni eins og hinir...
Hann var svo ánægður með innkallasnilld sína að hann þurfti tvisvar að segja frá því þegar hann laumaði kvótamálinu inn hjá Gunnari, fyrrverandi frjálslyndum.
Já. Hann má eiga það að honum finnst hann vera voðalega snjall.
Annars er þetta ágætispistill, þótt óheflaður sé. Með smá yfirlegu með tilliti til stafsetningar og endurtekninga hefði honum jafnvel tekist að meitla úr þessu fjandi beittan og skemmtilegan pistil.
Fuss! Hvaða óhroða er eiginlega verið að beina manni inn á?!?!? Ætti í það minnsta að vara mann við - nú verð ég að kveikja í tölvunni og eyða IP-tölunni úr -öllum opinberum skrám - vitiði kannski ekki að það er farið að fylgjast með okkur? Svei bara, Þarfi...
Skammast sín
Skemmir Þarfa
Skimar Þarfa
Það besta er þó að beygja Mörður - Myrðir !
Hlær og slær sér á lær enda snilldin tær
Það besta er þó að beygja Mörður - Myrðir !
Hlær og slær sér á lær enda snilldin tær
Gaman er hinsvegar að velta fyrir sjer hvaða merkingu þessi snilld hefur ef hún var gerð viljandi Starir þegjandi út í loftið.
Hugsanlega er þetta gælunafn þingmannsins, þar sem hann virðist einu sinni vera svo iðinn við að myrða ræður með frammíköllum sínum.
Kannski er maðurinn að skrifa á færeysku.
Þá er nú fokið í flest skjól.
Eflaust einhver sjúkdómur.
Best væri að aflífa kvikindið áður en hann smitar einhvern.
Nær í hreindýrariffil
Kannski er maðurinn að skrifa á færeysku.
Þá er nú fokið í flest skjól.
Eflaust einhver sjúkdómur.
Best væri að aflífa kvikindið áður en hann smitar einhvern.
Nær í hreindýrariffil
hreindýrariffilsglaði
er færeyska ekki sjúkdómur????
skálar heiftarlega
Kannski er maðurinn að skrifa á færeysku.
Þá er nú fokið í flest skjól.
Eflaust einhver sjúkdómur.
Best væri að aflífa kvikindið áður en hann smitar einhvern.
Nær í hreindýrariffil
hreindýrariffilsglaði
er færeyska ekki sjúkdómur????
skálar heiftarlega
Sannarlega er færeyska sjúkdómur og eina lækningin er svæfing með öflugu skotvopni - enda óbriðgðult að plaffa þá niður sem bera smitsjúkdóma sem slíkum tólum. Ég nefndi þessa riffil „sort“ vegna þess að sá flokkur skilar árangri.
Já skál! Ljómar upp
Skálar og tæmir flöskuna