Halló! Ég var einu sinni nýr hérna. Sárlega vantaði þá upp á að móttökur gætu talist boðlegar. Því boða ég hér með komu mína.
Vertu velkominn! Flissar að fíflaganginum í Fíflagangi
Velkominn, vonandi gengur þér vel að aðlagast. Mundu svo að fá þér almennilega mynd flissar
Sæll Fíflagangur! Flissar
Já, takk, ég var svona að læra á þetta ;-) :-þ
Það er auðsjeð að þjer eruð algjör nýliði hjer, svona tákn eru harðbönnuð hjer. Reyndar skilja fæstir gesta hjer svona hrognamál Heldur niðri í sjer hlátrinum.
Sæl. Punktur er líka æskilegur í lok setningar.
Annars mæli ég með því að þú lesir þráðinn sem ég vísa í að neðan, áður en þú sekkur þér í fagurt fen Gestapó.
Ég var líka einu sinni nýr.
Á ég að stofna þráð?
Ef þú vilt fara í söndrukimleik þá kallarðu mig smápakka, ekki spápakka.